Amphora Aromatics
Juniperberry ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics
Juniperberry ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Juniper ilmkjarnaolía - Einiber (Juniperus communis)
Viðarkenndur og kryddaður ilmur.
Af hverju ættirðu að eiga Einiberjaolíu?
Hreinsar og endurlífgar: Einstök fyrir olíumikla húð og hár. Blandið henni í andlitskrem eða húðmjólk til að opna svitaholur og lífga upp á þreytta húð.
Losar um eiturefni: Fullkomin í nudd (þynnt í 1% grunnolíu) til að örva blóðrásina, losa um eiturefni og fríska upp á hugann.
Orka og jafnvægi: Nokkrir dropar í ilmlampa styrkja tilfinningalegt jafnvægi og gefa þér það orkuskot sem þú þarft yfir daginn.
Fullkominn bjargvættur: Bættu nokkrum dropum í sturtuna eða baðið til að lina einkenni þreytu eða eftirköst eftir skemmtanir gærkvöldsins.
Unnin með gufueimingu úr berjunum og er hátóna.
Juniper ilmkjarnaolía tónar einstaklega vel við olíur eins og cedarwood, lavender, grapefruit og citronellu.
Notkun:
Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Uppruni: Nepal
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Deila vöru
