Amphora Aromatics
Jasmine absolute(5%) ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics
Jasmine absolute(5%) ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Innihald: Jasmín ilmkjarnaolía (Jasmin grandiflorum) 5% og grapeseed olía (Vitis Vinifera).
Sætur blómailmur sem er vermandi, slakandi og gefur gleði í hjartað. Jasmín er þekkt fyrir að vera ein af þeim olíum sem geta skapað rómantíska og munúðarfulla stemningu.
Jasmín ilmkjarnaolíu má nota á allar húðtegundir og getur hún hjálpað til við að minnka bólumyndun, jafnað húðtóninn, unnið á móti öldrun húðar og auka heilbrigði húðarinnar. Hana má einnig nota í hárið til að næra það og mýkja.
Jasmín olían þykir einnig góð gegn kvíða og þunglyndi og getur gagnast konum á breytingaskeiði vel.
Olían er unnin með útdrætti (solvent extraction) úr jasmín blómum og er hér blandað saman við grapeseed olíu.
Jasmín blandast sérstaklega vel með rósa olíu, sandalvið, clary sage og öllum sítrus olíum.
Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Uppruni: Indland.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)
Deila
