Mistur
Íslenskar lækningajurtir
Íslenskar lækningajurtir
Því miður ekki til á lager
Í þessari handhægu og vinsælu bók sem fyrst var gefin út 2011 er gert grein fyrir lækningamætti íslenskra jurta og úrvali erlendra lækningajurta sem nálgast má hér á landi.
Fjallað er um einkenni jurtanna og hvar þær er að finna, hvaða hlutar þeirra nýtast best til lækninga, virk efni í þeim og áhrif þeirra á mannslíkamann og gegn hvaða kvillum jurtalyf hafa reynst best. Auk þess prýða bókina á þriðja hundrað ljósmyndir í lit af öllum jurtum. Aftast í bókinni má finna viðbót (uppfærð útgáfa 2021) um hin fornu fræði kínverskra jurtalækninga og þau tengd við jurtirnar sem fjallað er um í bókinni.
Höfundur bókarinnar, Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, nam grasalækningar og síðar kínverskar lækningar og nálastungulækningar á Englandi. Hún hefur starfað við grasa- og nálastungulækningar hér á landi og erlendis um árabil.
302 blaðsíður
Deila vöru
