Ilmolíubrennari úr keramík, hvítur, kringlóttur
Ilmolíubrennari úr keramík, hvítur, kringlóttur

Ilmolíubrennari úr keramík, hvítur, kringlóttur

Venjulegt verð 3.075 kr

Hvítur, kringlóttur ilmolíubrennari úr keramík.

Yndislegar ilmolíur og notalegt kertaljós í fallegum brennara, blanda sem getur ekki klikkað!

Stöðugur ilmolíubrennari sem er auðveldur í notkun og fallegt blómamynstrið gefur kertaljósinu kost á að skína í gegn og varpa notalegum blæ á umhverfið. 

Notkun:

Fyllið skálina til hálfs af vatni og bætið 6-10 dropum af ilmkjarnaolíum út í. Magn dropa fer eftir því hvaða ilmolía er notuð því þær eru mis ilmsterkar. Af sumum olíum gæti jafnvel þurft minna magn. Kveikið því næst á kerti og staðsetjið undir skálinni. Með þessari aðferð eru olíurnar hitaðar hægt upp og dreifast hægt og rólega út í andrúmsloftið.  Ekki skilja brennarann eftir í herbergi án eftirlits og munið að fylla á með vatni og ilmkjarnaolíu þegar þörf er á.

Varúð:

Skiljið aldrei logandi kerti eftir án eftirlits og gætið þess að olíubrennarinn standi ekki nálægt gardínum og örðrum eldfimum efnum.  Staðsetjið þar sem börn og gæludýr ná ekki til.


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki