Mistur
Hindberjalauf
Hindberjalauf
Því miður ekki til á lager
Hindberjalauf eiga sér alda langa og dásamlega sögu í jurtahefð sem helsta jurt kvenna á ákveðnum tímamótum lífsins. Teið er gjarnan valið sem náttúrulegur félagi þegar fólk vill hlúa að líkamanum og nota tímann í notalegan innri undirbúning. Bragðið minnir um margt á hágæða svart te í áferð en er alveg kaffínlaust, sem gerir það að frábærum drykk fyrir alla daga.
- Bragð: Ríkt, ávaxtaríkt og jurtakennt (minnir á dökkt te).
- Helstu virku efni: Inniheldur jurtakraftinn fragarine (sem er sérstakt fyrir hindberjalauf), ríkt af tannínum (sútunarefnum) og C-vítamíni.
- Eiginleikar: 100% náttúrulegt og koffínlaust.
Notkun:
Notið eina matskeið í bolla af soðnu vatni, þrisvar á dag. Látið standa í 30 mínútur, síið og drekkið svo. Hættið notkun ef vart verður óeðlilegra einkenna. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
ATH. Einnig má gera kalt te (eða svokallað cold brew), en þá er 1 tsk af jurtum sett í 180-200 ml af köldu vatni og látið standa í ísskáp yfir nótt, eða í 6-8 klst. Gott er að gera aðeins stærri uppskrift í einu því þetta geymist vel í ísskáp í 3 - 5 daga.
Þetta te er algjörlega án kemískra efna, tilbúins áburðar eða skordýraeiturs og vex í ómenguðum jarðvegi.
Umbúðir: Pappírspoki og málmspenna.
Pakkað á Íslandi.
Geymið þar sem börn ná ekki til.
Athugið: Vegna strangra reglugerða ESB og íslenskra matvælalaga er bannað að birta læknisfræðilegar greiningar, fullyrða um virkni gegn sjúkdómum eða vísa til lækninga í vörulýsingum okkar. Textarnir lýsa því fyrst og fremst bragði, sögu og almennri vellíðan.
Deila vöru
