Jurtaapótek
Heiðrún te, 70 gr
Heiðrún te, 70 gr
Því miður ekki til á lager
Róandi jurtablanda
Heiðrún er mild og bragðgóð jurtablanda sem nærir taugakerfið og hefur róandi og slakandi áhrif og er því gott að drekka til dæmis fyrir svefninn. Heiðrún te getur einnig hjálpað til við að vinna á streitu og kvíða og þá er gott að drekka þrjá bolla dreift yfir daginn. Þetta te er frekar fljótvirkt og má nota reglulega eða bara af og til þegar þörf er á.
Innihald:
Lindiblóm (Tilia europaea), lavender (Lavendula angustifolia), piparmynta (Mentha piperita),
viðar betony (Stachys officinalis), rósir (Rosa spp.), fennel (Foeniculum vulgare),
grænir hafrar (Avena sativa).
Notkun:
Notið eina teskeið í einn bolla af soðnu vatni einu sinni til þrisvar sinnum á dag. Látið jurtirnar standa í vatninu í 20 mínútur, síið frá og drekkið. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Umbúðir: Pappírspoki með járnspennu.
Blandað og pakkað af Jurtaapótekinu.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
