Hárhandklæði
Hárhandklæði
Við kynnum til leiks bambus hárhandklæðið frá Eco Bath London. Fyrirtaks lausn til að þurrka hárið á auðveldan og fljótlegan hátt. Framleitt úr sjálfbærum bambus trefjum og er mjög rakadrægt, ofur mjúkt og vistvænt.
Fullkomið til að hafa inn á baðherberginu eða með í ræktina. Náttúrulegar trefjarnar eru bakteríudrepandi og án ofnæmisvaldandi efna.
Á handklæðinu er bambushnappur sem þú smeygir í gegnum Ecobath miðan aftan á til að halda handklæðinu á sínum stað.
● Bakteríudrepandi og án ofnæmisvalda
● Má fara í þvottavél
● Gott fyrir hárumhirðu
● Framleitt úr sjálfbærum bambus trefjum
Bambus hárhandklæðið frá Eco Bath London hjálpar þér að þurrka hárið á árangursríkan hátt, gefur því meiri fyllingu og minnkar líkur á úfnu hári. Mikil rakadrægni og ofur mjúk áferð gerir hárhandklæðið fullkomna lausn fyrir allar hártýpur.
Svo er þetta bara svo huggulegt!
Umbúðir: Pappaspjald
Framleitt í Tyrklandi.