Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Grapefruit ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics

Grapefruit ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics

Verð 2.615 kr
Verð Söluverð 2.615 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Grapefruit ilmkjarnaolía (Citrus Paradisi).

Sætur sítrusilmur.

Grapefruit ilmkjarnaolían inniheldur mjög hátt hlutfall limonene eða um 90%, sem gerir það að verkum að hún er andoxunarrík og getur haft jákvæð áhrif á bólgur og streitu. Grapefruit getur einnig gagnast vel á unglingabólur og blandaða húð þar sem hún getur dregið úr fitumyndun í húðinni.  Best er að meðhöndla húðina með grapefruit olíu að kvöldi þar sem hún getur gert húðina ljósnæmari í allt að 12 tíma.

Olían er unnin með kaldpressun (eða expression) úr berkinum og er hátóna.

Grapefruit ilmkjarnaolía blandast vel með öðrum sítrusolíum svo sem bergamot og sítrónu, krydduðum olíum (kanil, engifer, negul) og svo frísklegum jurtaolíum eins og piparmyntu, rósmarín og basil.

Notkun:  Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa

Sjá allar upplýsingar