Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Furu ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics

Furu ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics

Verð 2.165 kr
Verð Söluverð 2.165 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Fura - pine (Pinus Sylvestris).

Furu ilmkjarnaolía er einstaklega hreinsandi, bakteríu- og sveppadrepandi og bólgueyðandi og inniheldur mikið af andoxunarefnum. Hún hefur ferskan og upplífgandi ilm sem hentar vel t.d í ilmolíulampa. Hana má nota í olíublöndur t.d með pipar ilmkjarnaolíu (black pepper) og rósmarín gegn vöðvabólgum, á þreytta vöðva eftir æfingar og eins getur hún létt á bólgum og verkjum í liðum vegna gigtar. Hana má bera á bringu og bak ef um kvef er að ræða og eins er gott að setja hana í ilmlampa eða í spreybrúsa til að hreinsa loftið þegar flensa og kvefpestir eru í gangi. Einnig má nota hana til innöndunar, annaðhvort í gufubað eða í innöndunarstaut (sjá hér). Furan getur einnig hjálpað gegn höfuðverk og streitu, bæði með innöndun og eins má blanda henni í smá grunnolíu og bera á gagnaugun.  
Furu ilmkjarnaolía þykir líka góð til heimilisþrifa, út í sápur og í kerti. 
Olían er unnin með gufuemingu úr furnálunum og er miðtóna.
Furu ilmkjarnaolía blandast sérstaklega vel með sedrusvið, eucalyptus, lavender, niaouli, rósmarín og salvíu ilmkjarnaolíum. 

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Austurríki
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar