Ingling
Fenugreek Maca, 90 hylki - Ingling
Fenugreek Maca, 90 hylki - Ingling
Því miður ekki til á lager
Orka - hormónajafnvægi - breytingaskeið - testósterón
Löng hefð er fyrir notkun maca og fenugreek fyrir hormónajafnvægi bæði karla og kvenna og eins fyrir orku og almenna kynheilsu. Þessi blanda getur t.d. gagnast konum á breytingaskeiði, viðhaldið eðlilegu testósterón magni í blóði og getur aukið kynhvötina.
Þessar jurtir geta líka verið góðar fyrir styrk, orku, frammistöðu og þol og stuðlað að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Notkun:
Takið þrjú hylki á dag. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Innihald í þremur hylkjum:
Fenugreek fræ extrakt* 510mg
Maca extrakt* 1000mg
Zinc glycinate 5 mg
Dextrín
*lífrænt
Hylki úr jurtabeðmi.
ATH. Fenugreek er bæði blóðþynnandi og getur lækkað blóðsykur og er því ekki æskilegt að nota samhliða blóðþynningarlyfjum eða öðrum jurtum sem geta verið blóðþynnandi og notist með varúð ef um sykursýki er að ræða. Fenugreek getur framkallað ofnæmisviðbrögð hjá einstaklingum sem eru viðkvæmir fyrir jarðhnetum, sojabaunum og öðrum belgjurtum (belgávöxtum).
Umbúðir: Glerkrukka og plastlok.
Framleitt af Ingling, Íslandi.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
