Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Amphora Aromatics

Eucalyptus ilmkjarnaolía 10 ml. Lífræn

Eucalyptus ilmkjarnaolía 10 ml. Lífræn

Verð 1.565 kr
Verð Söluverð 1.565 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Tröllatré  (Eucalyptus - Eucalyptus globulus)

Eucalyptus globulus inniheldur hátt hlutfall (70%) af virka efninu Cineol sem er m.a. bólgueyðandi og bakteríudrepandi og er olían oft notuð í krem og olíur sem notuð eru t.d. við flugnabiti, kvefi og
vöðvabólgu.

Olían er unnin með gufueimingu úr laufunum og tónninn er miðtónn/hátónn.

Tröllatré blandast vel með Benzoin, Timian, Lavender, Lemongrass, Lemon og Pine (furu)

Tröllatré kom upprunalega frá Tasmaníu og Ástralíu en finnst núna í ýmsum löndum við Miðjarðarhafið.  Löng hefð er fyrir notkun jurtarinnar meðal frumbyggja Ástralíu.

Notkun

Við kvefi er gott að setja nokkra dropa í skál af heitu vatni, hylja höfuðið með handklæði og anda að sér gufunni, einnig má setja dropa í lófann og anda að sér. Það er líka gott að blanda Eucalyptus í grunnolíu eða krem og nudda á brjóst og bringu. Fyrir vöðvabólgur má annaðhvort útbúa nuddolíu með Euaclyptus, Rósmarín og Engifer eða Svörtum pipar og einnig má setja sömu blöndu í bað ásamt góðu salti, t.d. Epsom eða Himalaya salti.
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Kína

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

 

Sjá allar upplýsingar