Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

EcoLiving

Eldhús svampskrúbbur - EcoLiving

Eldhús svampskrúbbur - EcoLiving

Verð 940 kr
Verð Söluverð 940 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Svampskrúbburinn er plastlaus og jarðgerðarhæfur svampur með náttúrulegu lúffulagi sem veitir aukinn hreinsikraft! Þessi endingargóði og margnota svampur er laus við skaðleg efni, sem gerir hann að öruggri og umhverfisvænni viðbót við plastlaust heimili.

Svampskrúbburinn er gerður úr 70% viðarsellulósa og 30% bómull, með náttúrulegu lúffulagi að ofan og bandi úr náttúrulegri bómull. Lúffa er ávöxtur af agúrkuætt. Þegar hún hefur þroskast og þornað er trefjaríkur innviðurinn fjarlægður og saumaður saman til að búa til náttúrulegan sellulósasvamp. Svampskrúbburinn hentar vel í uppvaskið en einnig til að þrífa borð, flísar, vaska og aðra fleti sem erfitt er að þrífa.

Hægt er að þvo þennan svampskrúbb og nota hann aftur og aftur. Þegar kemur að því að skipta honum út brotnar hann niður og verður að moltu á náttúrulegan hátt, án þess að auka á vandamál tengd plastúrgangi.

Við mælum með að skola svampinn vel eftir hverja notkun, kreista úr honum vatnið og hrista hann. Fyrir aukna hreinsun á svampinum er gott að skella honum með í uppþvottavélina öðru hvoru eða láta hann liggja í sjóðandi vatni í nokkrar mínútur ásamt smávegis af ediki og hengja hann svo upp á bómullarbandinu eða láta hann standa á meðan hann þornar. Athugið að svampinn má ekki þvo í þvottavél.

Stærð: 11 x 7 cm.

Umbúðir: Pappaspjald.

Sjá allar upplýsingar