Marley's Monster
Ekki klósettpappír, 24 stk á rúllu 11x30 cm. Marglit mynstur
Ekki klósettpappír, 24 stk á rúllu 11x30 cm. Marglit mynstur
Því miður ekki til á lager
Toilet UNpaper® er margnota salernispappír úr 100% bómullarflóneli – fyrir alla! Já, við sögðum það – margnota salernispappír.
Toilet UNpaper® er margnota salernispappír úr mjúku og rakadrægu bómullarflóneli sem má þvo og nota aftur og aftur. Lengjur af Toilet UNpaper® eru vafðar utan um sérhannað pappahylki úr kraftpappír, líkt og hefðbundinn salernispappír og hægt er að vefja þær aftur utan um hylkið eftir þvott. Hægt er að geyma rúllur af Toilet UNpaper® í fallegu íláti eða setja þær á hefðbundinn pappírshaldara.
Fyrir fyrstu notkun:
Fjarlægðu miðann og þvoðu staflann af Toilet UNpaper®. Þegar flónel lengjurnar hafa þornað má stafla þeim aftur saman og rúlla þeim einni af annarri upp á pappahylkið.
Umhirða og þvottur: Má þvo í vél á háum hita með svipuðum litum. Þurrka í þurrkara við lágan hita eða hengja á snúrurnar. *Leggið í bleyti með ediki eða hreinsiefni eftir þörfum og notið þvottaefni að eigin vali.
Svo ætlum við að vera rosalega amerískar og vekja athygli á að þar sem að þetta er margnota þá mælum við ekki með því að sturta þessu niður í klósettið.
Umbúðir: Endurunnið pappaspjald sem má endurvinna aftur.
Handgert í Eugene, Oregon, USA
Deila vöru
