Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Burstenhaus Redecker

Eggjabikar

Eggjabikar

Verð 1.790 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.790 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Einstaklega eggjandi eggjabikar úr ólífuvið sem gerir öll egg ómótstæðilega girnileg.

Ólífuviðurinn er náttúrulega harður vegna hægs vaxtar trésins og inniheldur hátt hlutfall olíu sem gerir það að verkum að viðurinn hrindir frá sér raka og eggjabikarinn er mjúkur í hendi.  Viðurinn er einungis olíuborinn og ekki meðhöndlaður neitt frekar.  Við mælum ekki með að setja eggjabikarinn í uppþvottavél heldur að þvo hann með mildri sápu og mjúkum bursta og þurrka eftir notkun. Til að varðveita fegurð viðarins mælum við með að nudda eggjabikarinn af og til með einfaldri ólífu- eða sólblómaolíu og láta hann þorna vel.

Hráefni: Olíuborinn ólífuviður.
Stærð: U.þ.b. 6 cm.
Umbúðir: engar
Framleiðsluland: Túnis

Sjá allar upplýsingar