Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

Mistur

Drykkjarflaska úr kopar, 500 ml

Drykkjarflaska úr kopar, 500 ml

Verð 5.995 kr
Verð Söluverð 5.995 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Kopar drykkjarflöskur (tamba) hafa verið gerðar og notaðar á Indlandi í yfir 2000 ár. Samkvæmt fornu indversku Ayurveda fræðunum hjálpar drykkjarvatn úr kopar flösku til við að koma jafnvægi á líkamsgerðirnar þrjár (Doshas), Vata-loft, Kapha-vatn og Pitta-eldur. Kopar drykkjarflaskan er hönnuð og framleidd með þessa hugmyndafræði í huga.

Kopar drykkjarflaskan er eingöngu ætluð undir kalt vatn, við mælum ekki með að geyma mjólk, sítrus drykki eða aðra súra drykki í flöskunni.

Efni: Flaskan er gerð úr 99,9% hreinum kopar, fægð og lökkuð að utan, fægð að innan.
Þyngd: 294 gr.
Stærð:
Þvottur: Handþvottur í heitu sápuvatni. Við mælum ekki með að setja flöskuna í uppþvottavél.
Gott er að pússa flöskuna með sítrónubátum, eða blanda saman sítrónusafa og salti eða matarsóda og nudda varlega á flöskuna.

Geymist ekki í beinu sólarljósi.
Umbúðir: Pappabox.
Framleitt á Indlandi.

ATH. Kopar getur mislitast eða fengið bletti vegna oxunar. Þetta eru náttúrulegir eiginleikar kopars og hafa engin neikvæð áhrif á vatn sem drukkið er úr flöskunni. Kopar er líka frekar mjúkur málmur og því er ekki óeðlilegt að það sjái aðeins á honum. 

Sjá allar upplýsingar