La Brújería
Damiana tinktúra, 100 ml
Damiana tinktúra, 100 ml
Því miður ekki til á lager
Damiana (Turnera diffusa) tinktúra.
Bæði Mayar og Aztekar notuðu damiana sem kynörvandi jurt en damiana er talin geta haft áhrif á testósterón framleiðslu í líkamanum og þar með haft áhrif á orku og kynhvötina. Þessi jurt getur líka haft góð áhrif á hormónajafnvægi kvenna á öllum aldursskeiðum, ekki síst á breytingaskeiðinu. Damiana getur líka haft styrkjandi áhrif á taugakerfið og getur hjálpað með kvilla tengda öndunarfærunum s.s. astma. Hún getur einnig hjálpað við að koma blæðingum af stað og getur verið mild hægðalosandi.
Varúð: Notist ekki á meðgöngu.
Inntaka:
Takið 1 dropa fyrir hver tvö kíló líkamsþyngdar tvisvar sinnum á dag út í vatn (dæmi: ef þú ert 60 kg þá tekurðu 30 dropa tvisvar á dag). Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Umbúðir: Glerflaska og plasttappi með dropateljara.
Framleiðandi: La Brújería.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
