Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Dalileo

Dalileo kakó - 40 grömm

Dalileo kakó - 40 grömm

Verð 1.190 kr
Verð Söluverð 1.190 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Poki með hráefni í tvo bolla (40 grömm) af niðurskornu "single origin"100% hreinu kakó frá Guatemala sem er sannkölluð ofurfæða. Þetta kakó kemur frá Dalileo Chocolat í Polochic dalnum í norðurhluta landsins þar sem notast er við umhverfisvænar ræktunaraðferðir, með tilliti til orkusparnaðar, sjálfbærni og skógræktar.  Við miðum við 20 gr í bollann en auðvitað má nota minna, sérstaklega þegar verið er að byrja að drekka kakóið.

Kynntu þér töfra kakósins.

Kakóið er svokallað “ceremonial grade cacao". Hreint kakó inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu, er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Það inniheldur phenylethylamine (PEA), efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical", er endorfín sem mannslíkaminn framleiðir og hefur aðeins fundist í einni plöntu – Cacao Theobroma. Kakó inniheldur króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur og tryptophan svo eitthvað sé nefnt af þeim góðu efnum sem kakóið hefur að geyma. 

Fjölmargar rannsóknir sem gerðar hafa verið, meðal annars við Yale og Oxford, staðfesta virkni kakóbaunarinnar og stöðu hennar sem heilsusamleg og heilsueflandi fæða.  

Dagleg notkun: Tilvalið að útbúa heitan kakóbolla, skella kakói í hristinginn, út á grautinn eða til dæmis í hnetumixið. 

Framleiðsluferli: Kakóbaunirnar eru gerjaðar í sedrusviðarkössum og sólþurrkaðar eftir gerjun. Þær eru síðan léttristaðar, skurnin tekin af þeim og kakóið malað í massa sem harðnar. Kakómassinn viðheldur náttúrulegu fitumagni og mjúk vinnslan varðveitir mikilvæg næringarefni sem annars tapast eftir því sem kakóbaunin er meira unnin.

Sjá allar upplýsingar