Cordyceps Sveppadropar - Frammistaða og úthald, 50 ml.
Cordyceps Sveppadropar - Frammistaða og úthald, 50 ml.
Úthald - orka - frammistaða - endurheimt - kynhvöt
Cordyceps (Cordyceps Sinensis) er getur bætt líkamlega frammistöðu, viðhaldið þreki og stytt endurheimt eftir líkamlegt erfiði. Taktu á morgnana fyrir langvarandi orku yfir daginn eða fyrir æfingu til að auka þol og frammistöðu.
Rannsóknir sýna að Cordyceps eykur framleiðslu líkamans á sameindinni adenósín þrífosfat, sem er mikilvægur hlekkur í því að koma orku til vöðvanna og einnig hafa rannsóknir sýnt að hann getur hjálpað til við að auka kynhvötina. Cordyceps er talin vera lífsbætandi jurt sem jafnan er notuð til að styrkja minni, lungu og nýru sem og almenna heilsu og vellíðan.
Innihald: Lífrænn Cordyceps, hreint vatn, ethanol 20%. Extrakt er 10:1.
Í Cordyceps sveppnum eru eftirfarandi lífaðgengileg efnasambönd:
Cordycepin, Adenosine, β-(1,3)-(1,6)-D-glucans(fjölsykrur), sterólar, melanín og D-mannitol.
Cordyceps sveppurinn er týndur í skógum norður Finnlands en varan er þróuð og fullunnin í Danmörku.
Aðeins sveppirnir sjálfir eru notaðir í framleiðsluna, ekki sveppaþræðirnir, korn eða aukaefni.
Notkun:
2 ml (1000mg) skammtur á dag, (tvær pípettur) út í hvaða drykk sem er eða bara beint undir tunguna, mælum með að nota að morgni eða fyrir æfingar.
Lífvirkir sveppir virka best ef teknir daglega yfir lengri tíma.
ATH.
Þessi vara telst sem fæðubót samkvæmt íslenskri reglugerð. Ekki skal neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur gefur til kynna. Varan kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og er ekki ætluð til þess að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma.
Mælum með að hafa samband við lækni fyrir notkun ef þú er barnshafandi eða með barn á brjósti.
Geymist við stofuhita og þar sem að börn ná ekki til.
Umbúðir: Fjólublá glerflaska með pípettu og endurvinnanlegar pappaumbúðir úr FSC.
Vottanir
· EU & USDA Certified Organic
· FSSC 22000 Certification
· Dansk Økologi Mærkning