Amphora Aromatics
Comfrey olía 100 ml - Amphora Aromatics
Comfrey olía 100 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Comfrey (Symphytum officinale) eða Valurt eins og hún heitir á íslensku er gömul lækningajurt sem þykir góð að nota meðal annars á mar, tognun og beinbrot. Hún hefur líka græðandi eiginleika en varast skal að nota hana á opin sár.
Olían inniheldur gott magn af kalki og C-vítamíni og hana er gott að nota sem grunnolíu í nudd á auma og stífa vöðva. Þessi olía getur líka verið gagnleg fyrir húð og hár vegna rakagefandi og nærandi eiginleika.
Comfrey olía er unnin með svokallaðri infusion aðferð en þá eru brumin og blómin látin liggja í grunnolíu (í þessu tilfelli möndluolíu) í ákveðið langan tíma meðan grunnolían mettast af krafti og eiginleikum jurtarinnar.
Innihald: Prunus amygdalus dulcis Oil (Sweet Almond), Symphytum officinale Leaf Extract
100 ml.
Varúð: Comfrey olía er eingöngu ætluð til útvortis notkunar og ætti ekki að nota á opin sár.
Geymist þar sem börn ná ekki til. Geymist fjarri sólarljósi.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa
Deila vöru
