Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Citronella ilmkjarnaolía lífræn, 10ml

Citronella ilmkjarnaolía lífræn, 10ml

Verð 3.295 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.295 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Citronella (Cymbopogon Winterianus).

Citronella er helst þekkt fyrir þá eiginleika að fæla burtu flugur en getur líka verið góð á flugnabit. Hún hefur sveppadrepandi eiginleika og má nota gegn sníkjudýrum, getur hjálpað við að lækka hita og draga úr hósta. Hún getur einnig haft verkjastillandi og bólgueyðandi áhrif og hefur einnig græðandi eiginleika. Hana má nota í olíu bakstur á kvið vegna vindverkja og krampa í ristli og getur líka verið gagnleg fyrir túrverki og krampa.
Olían er unnin með gufueimingu úr grasi og er hátóna sítrus ilmur með mjúkum jarðar undirtón.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Java í Indónesíu.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar