Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

Blómadropar Kristbjargar

Brynja ofurhetjunnar. Íslenskir Blómadropar Kristbjargar. 3 x 10 ml.

Brynja ofurhetjunnar. Íslenskir Blómadropar Kristbjargar. 3 x 10 ml.

Verð 7.790 kr
Verð 0 kr Söluverð 7.790 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Brynja ofurhetjunnar inniheldur hreinustu og öflugustu tíðniorku hinnar villtu íslensku náttúru; tíðni úr blómum, steinum og jöklum. Settið er fyrir þá sem þurfa að styrkja taugakerfið, vilja fá jafnvægi í lífið, hafa verið undir miklu langvarandi álagi eða jafnvel komnir í kulnunar ástand.

Ofurhetju settið inniheldur þrjár flöskur: 1) Saviour (bjargvætturinn), 2) Nerve relaxer (slakar á taugakerfi) og 3) Nerve purifier (hreinsar taugakerfið). Til að droparnir virki sem best fyrir taugakerfið þá er gott að byrja á flösku 1 (saviour) og klára hana áður en byrjað er á flösku 2 (Nerve relaxer) og enda svo á flösku 3 (Nerve purifier). 

Flaska 1 - Saviour. Verndar þig gegn streitu hversdagsins og getur hjálpað okkur við að losa um allskyns áföll sem sitja djúpt í tilfinningum og líkama. Saviour styður við aukið orkuflæði í líkamanum og getur hjálpað til við að efla sjálfstraust og hugrekki.

Notkun: Takið 3-7 dropa undir tunguna fjórum sinnum eða oftar yfir daginn. Einnig má þynna dropana út í vatni til að fá virknina dýpra í líkamann og þá má setja 7-21 dropa út í vatn tvisvar til þrisvar á dag.

Flaska 2 - Nerve Relaxer. Hjálpar til við að losa um streitu og spennu í taugakerfinu, sleppa takinu og slaka á. Nerve Relaxer getur hjálpað til við að losa um taugatitring, óróleika og innri spennu sem á sér engar útskýringar. Blandan getur einnig róað hugann, aukið einbeitingu og hjálpað okkur að finna meiri gleði og ánægju í lífinu.

Notkun: Takið 3-7 dropa undir tunguna fjórum sinnum eða oftar yfir daginn. Einnig má þynna dropana út í vatni til að fá virknina dýpra í líkamann og þá má setja 7-21 dropa út í vatn tvisvar til þrisvar á dag.

Flaska 3 - Nerve Purifier. Hjálpar til við að næra, endurbyggja og styrkja taugakerfið. Þessi blanda getur hjálpað okkur að losa um hindranir, djúpstæða reiði og þunga orku sem hefur hlaðist upp í taugakerfinu og getur þannig stutt okkur í að finna til meiri friðar og nægjusemi.

Notkun: Takið 3-7 dropa undir tunguna fjórum sinnum eða oftar yfir daginn. Einnig má þynna dropana út í vatni til að fá virknina dýpra í líkamann og þá má setja 7-21 dropa út í vatn tvisvar til þrisvar á dag.

Umbúðir: Glerflöskur með dropateljara, pappaaskja.

Framleitt á Íslandi af Kristbjörgu Elí ehf.

Sjá allar upplýsingar