EcoLiving
Biotic Boost tannkremstöflur
Biotic Boost tannkremstöflur
Því miður ekki til á lager
Tannkremstöflur fyrir heilbrigða góma, með flúor.
125 stk. í poka. (uþb. tveggja mánaða birgðir)
Biotic Boost Toothpaste TABS frá ecoLiving eru fullkominn ruslfrír, plastlaus og vegan valkostur við hefðbundið tannkrem. Þessar tannkremstöflur eru framleiddar í Bretlandi úr 100% náttúrulegum innihaldsefnum og eru án rotvarnarefna, áls og nanóagna og veita milda og áhrifaríka hreinsun fyrir tennur og tannhold.
Öflug blanda af jurtum og gerlum sem stuðlar að heilbrigði tannholds með því að hindra vöxt skaðlegra baktería, koma jafnvægi á vistkerfi munnholsins og hjálpa til við að koma í veg fyrir holur og tannholdseyðingu. Inniheldur sink laktat, örverueyðandi og bólgueyðandi efni sem jafnar sýrustig munnholsins og minnkar þannig líkur á tanneyðingu, andremmu og tannsteinsmyndun og einnig innihalda töflurnar þykkni úr magnolíu berki sem styður enn frekar við heilbrigði tannholds með því að draga úr bakteríum í munni sem valda tannholdssjúkdómum og bólgu.
Notkun:
Settu eina töflu í munninn og tyggðu til að brjóta hana niður, bleyttu tannburstann og burstaðu á hefðbundinn hátt.
Innihald:
Ísómalt, kalsíum karbónat, kaólín leir, natríumbíkarbónat, Hydroxyapatite, bragðefni (piparmynta), súkrósa stearate, natríum kókosúlfat, Silica, natríum mónóflúorfosfat (eingöngu í flúor töflum), Zinc Lactate, Menthol, Stevia Rebaudiana lauf þykkni, þykkni úr magnólíuberki, Lactobacillus Ferment gerlar.
Fluorinnihald 1450 ppm.
Umbúðir: Endurlokanlegur, 100% plastlaus poki úr niðurbrjótanlegu plöntuefni sem brotnar niður í heimamoltu.
Framleitt í Bretlandi
Deila vöru
