Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Benzoin ilmkjarnaolía, 10 ml. - Amphora Aromatics

Benzoin ilmkjarnaolía, 10 ml. - Amphora Aromatics

Verð 1,785 kr
Verð 0 kr Söluverð 1,785 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Benzoin (Styrax benzoin)

Vanillukenndur, hlýr ilmur.

Benzoin hefur róandi, upplyftandi og vermandi áhrif og er einstaklega góð fyrir húðina. Benzoin ilmkjarnaolíu má nota t.d. í nuddolíur fyrir auma vöðva en er sérstaklega góð í krem fyrir þurra og sprungna húð, í handkrem fyrir garðyrkjufólk og aðra sem vinna úti og í varasalva. Benzoin nýtist einnig vel í gufuinnöndun, einkum að vetri til og getur hjálpað til við að lina hósta, ertingu í hálsi og væga stíflu í öndunarveginum.

Benzoin er oft notuð sem náttúrulegt rotvarnarefni í kremum.

Olían er unnin með útdrætti (solvent extract); blanda af kvoðu úr Styrax bezoin með DPG (dipropylene glycol) sem leysi til að gera hana fljótandi.  Olían er lágtóna - miðtóna.

Ef kalt er í veðri gæti þurft að verma ilmkjarnaolíuna aðeins fyrir notkun.

Sætur og hlýr tónn Benzoin ilmkjarnaolíunnar blandast vel með mörgum öðrum olíum en kannski sérstaklega vel með Bergamot, Frankincense og Juniper.

Notkun: Oft notuð sem náttúrulegt rotvarnarefni í krem. Góð í krem fyrir þurra og sprungna húð. Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.


Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.


Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa


Uppruni: Bretland

Sjá allar upplýsingar