Amphora Aromatics
Aniseed ilmkjarnaolía 10 ml
Aniseed ilmkjarnaolía 10 ml
Því miður ekki til á lager
Stjörnuanís (Illicium verum)
Anís er hefur sætan, lakkrískenndan ilm sem er í senn hressandi og róandi. Olían talin gagnleg við kvefi og flensu auk þess sem hún er talin draga úr streitu og kvíða. Anís getur haft róandi áhrif á meltingarkerfið og má nota í nuddolíublöndur við lið- og vöðvaverkjum.
Olían er unnin með gufueimingu úr anísfræjum og er miðtóna.
Anís olían blandast vel með spearmint, lavender, cedarwood og chamomile.
Notkun:
Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Uppruni: Kína.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa
Deila vöru
