Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Amphora Aromatics

Hvítur ávalur ilmolíubrennari úr keramík

Hvítur ávalur ilmolíubrennari úr keramík

Verð 3.075 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.075 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Yndislegar ilmolíur og notalegt kertaljós í fallegum brennara, blanda sem getur ekki klikkað!

Stöðugur ilmolíubrennari sem er auðveldur í notkun og fallegt blómamynstrið gefur kertaljósinu kost á að skína í gegn og varpa notalegum blæ á umhverfið.

Notkun:
Fyllið skálina til hálfs af vatni og bætið 6-10 dropum af ilmkjarnaolíum út í. Magn dropa fer eftir því hvaða ilmolía er notuð því þær eru mis ilmsterkar. Af sumum olíum gæti jafnvel þurft minna magn. Kveikið því næst á kerti og staðsetjið undir skálinni. Með þessari aðferð eru olíurnar hitaðar hægt upp og dreifast hægt og rólega út í andrúmsloftið. Ekki skilja brennarann eftir í herbergi án eftirlits og munið að fylla á með vatni og ilmkjarnaolíu þegar þörf er á.

Varúð:
Skiljið aldrei logandi kerti eftir án eftirlits og gætið þess að olíubrennarinn standi ekki nálægt gardínum og örðrum eldfimum efnum. Staðsetjið þar sem börn og gæludýr ná ekki til.

Umbúðir: Pappabox.

Sjá allar upplýsingar