20 atriði sem sem gera ferðalagið umhverfisvænna.

Í fyrra tókum við saman lista yfir nokkra hluti sem orðnir eru sjálfsagðir á ferðalögum okkar bæði innan lands og utan, þó svo að útlönd séu orðin eins og fjarlæg minnig. Þessi færsla var ein mest lesna færslan hér hjá okkur og greinilegt að margir eru að spá í þessa hluti sem er vel. Því kemur hún hér aftur í endurbættri útgáfu.

Fyrir matvæli

  1. Qwetch drykkjarflaska sem heldur bæði heitu og köldu. Frábær í bílinn og gönguferðina. Hægt að fylla á á næstu bensínstöð og spara um leið kaupin á vatni eða gosi í plastflösku. Hollt, umhverfisvænt og sparar pening til lengri tíma litið svo ekki sé talað um minni plastnotkun. 750ml eða 1,5 ltr. Qwetch flöskurnar geta líka verið góðar fyrir uppáhellt kaffi eða til að blanda djús í og geyma ískalt. Með því móti má losna við litlar  einnota fernur í ferðaruslið.
  2. Ferða (kaffi) mál – undir kaffið, teið eða ísinn í næstu ísbúð. Þau eru ófá pappamálin sem notuð eru einu sinni undir kaffi eða ís. Með margnota málum má fækka þeim svo um munar og það munar um hvert eitt.
  3. Margnota hnífapör. Bæði í stálsettinu okkar og úr bambus er skeið sem má þá nota í ísinn sem fór í margnota ferðamálið. Svo eigum við líka til skeið og gaffal í einu áhaldi. Leysir af hólmi einnota (plast) hnífapör ef stoppa á einhverstaðar og fá sér bita. Svo er líka bara ofur einfalt að taka með sér hnífapör að heiman.
  4. Bee’s Wrap. Við mælum sérstaklega með að taka Bee’s wrap matvælaarkirnar í útileguna. Þær er svo hægt að nota utan um skinkubréfið, flatkökurnar eða sviðasultuna til að loka plastumbúðunum betur. Nú eða oststykkið, hálfan tómat, gúrku, avókadó eða sítrónu. Bara allt nema hrátt kjöt og fisk. Þarna má losna við að nota þó nokkra nestispoka eða plastfilmu.
  5. Nestispoki, segir sig pínulítið sjálft. Ef fara á í lengri gönguferð er gott að setja hnetumix, samloku eða niðurskorna ávexti og grænmeti í pokann. Svo má líka taka hann með í matvöruverslu fyrir nammibarinn. – Það má nú stundum fara þangað.
  6. Nestisbox. Gott getur verið að vera með nestisbox í útilegunni undir matarafganga eins og sósu eða súpu sem borða á síðar. Nú eða síðustu grillsneiðina sem gott getur verið að narta í seint um kvöld.
  7. Uppþvottasápa og bursti. Kosturinn við að nota margnota hluti á ferðalaginu er að maður fær að vaska upp á ótrúlegustu stöðum. Þá er gott að vera með umhverfisvænan uppþvottakubb sem inniheldur enginn eiturefni sem fara í næstu rotþró og þaðan út í umhverfið. Tölum nú ekki um ef næsti lækur er notaður til að skola af mataráhöldum. Náttúrulegur bursti, svampur eða lúffa er svo góð viðbót til að skrúbba með. Sápukubbinn og skrúbbinn er gott að geyma í nestispoka.
  8. Kaffipoki. Margnota kaffipoki ætti eiginlega að vera staðalbúnaður í öllum útilegugræjum. Tekur ekkert pláss og lausir kaffifilterar út um allt box eða skúffur heyra sögunni til. Hvað um kaffikorginn? – náttúran nýtir hann aftur.
  9. Burðarpoki. Margnota burðarpoki þegar skreppa þarf inn í næstu kjörbúð til að kaupa í matinn er orðin svo sjálfsagður hlutur hjá flestum að varla þarf að minnast á hann….eða hvað? Kemur líka að góðum notum ef fara á í sund á nýjum stað og sundtaskan hefur gleymst heima. LOQI burðarpokarnir koma í litlum rennilásapoka sem sniðugt er nota aftur undir burðarpokann eða t.d. eyrnapinna, ef maður vill ekki taka allt boxið með, tannstöngla, hárteygjur, klemmur og ýmislegt annað smálegt. 
  10. Rennilásapokar frá LOQI. Undir ýmislegt smálegt á ferðalaginu til að halda öllu í sínum stað og geta gengið að hlutum vísum. Sem dæmi geta þeir nýst sem snyrtibudda, undir óhreint, lítil leikföng, handavinnu eða hvað eina sem fólki dettur í hug.
  11. Pappírspokar frá EcoLiving fyrir matarafganga ætlaða í moltuna. Humm, hvernig fer maður nú að þessu, blotnar þá ekki pokinn og maukast í sundur eða? Nei, það þarf ekki að vera. Afskurður af t.d. papriku, lauk, kaffikorgur sem hefur fengið að þorna aðeins og fleira þar fram eftir götunum getur vel farið í svona poka sem síðan er hægt að taka með heim eða setja í moltutunnur á svæðinu. Við erum reyndar ekki búin að prófa en munum gera það í fyrstu útilegu ársins sem verður vonandi mjög fljótlega. Svo verða þeir pottþétt bara notaðir undir almennt rusl, því plastpokar fyrirfinnast einfaldlega ekki í ferðagræjunni. 

Snyrtivörur
  1. Ferðasápa og sápubox. Ferðasápuna frá Friendly má nota á kroppinn, í hárið, skeggið og jafnvel í fötin ef slys hendir. Sparar óneytanlega pláss í snyrtitöskunni þar sem hægt er að skilja raksápuna, sjampó- og hárnæringarbrúsann eftir heima. Þ.e.a.s. hjá þeim sem enn eru að kaupa í plasti.
  2. Alhliða húðkrem frá Nathalie Bond er sjálfkrafa orðin staðalbúnaður hér á bæ í ferðalögum og allir fjölskyldumeðlimir nota það. Leysir fjöldann allan af kremum og snyrtivörum af hólmi. Virkar á sólarexem og flugnabit (slær um leið á kláða), sem raka- og dagkrem og er með SPF 5 sólarvörn, sem andlitshreinsikrem, handáburður og varasalvi. Bara þessi eina krukka leysir svo margar dollur af hólmi.
  3. Svitakrem. Litlu krukkurnar frá Naturlig Deo eru einfaldlega snilld á ferðalaginu þegar við erum alltaf að reyna að taka eins lítið með og hægt er. Hentar öllum kynjum og við höfum heyrt af einstaklingum sem nota lavender svitakremið til að bægja frá lúsmý. Litla krukkan dugar í allt að þrjár vikur og svo má bara einfaldlega kaupa stóra og fylla á þá litlu.
  4. Rakvél í hulstri. Já, margir vilja og/eða þurfa að raka sig á ferðalögum. Þá er gott að geta geymt rakvélina sína í ferðahulstri sem er sérstaklega hannað fyrir margnota rakvélina. Ferðasápuna frá Friendly eða EcoLliving má svo nota sem raksápu. Reyndar er raksápan frá Lovett Sundries líka í svo handhægum umbúðum að gott gæti verið að hafa hana með. Einfalt, þægilegt og plásslítið.
  5. Sápuhnetur í poka. Sumir kjósa að taka með sér nokkrar sápuhnetur í poka í ferðalagið til að skola úr fötum. Það er margt vitlausara en það. Og ef einhver er að vandræðast með annan bómullarpoka undir hneturnar má einfaldlega nota stakan sokk, krukku eða binda þær inn í gamlan vasaklút, ef þeir fyrirfinnast enn einhverstaðar.
  6. Tannkremstöflur í litlu málmboxi. Tannkremstöflurnar frá EcoLiving eru nú þegar orðnar staðalbúnaður í snyrtibuddunni hér á bæ og þvílíka snilldin! Ein tafla í munninn, tyggja á meðan burstinn er bleyttur í á, læk eða undir krana og svo bursta...og þar næst spýta. Töflurnar eru bæði til með og án flúors. Getum ekki dásamað þær nægilega vel.
  7. Naglabursti - lítill og nettur og er því hægt að nota bæði á stórar og litlar hendur til að ná af alskonar mold og fleiri efnum eftir náttúrulega ævintýraleiki.
  8. Plástur er nauðsynlegur í öll ferðalög. Litlar skrámur eftir príl í trjám eða klifur í klettum, flís í fingur eftir tálgerí eða flugnabit, hælsæri eftir göngutúr, blöðrur á fingrum eða vörum eftir grillaða sykurpúða geta hæglega gert góða daga ómögulega. Þá er gott að vera með PATCH bambusplásturinn við hendina því þó svo að hann detti af, brotnar hann niður í náttúrunni á nokkrum vikum án þess að skilja nokkuð eftir. 
  9. Konjak svampur frá Friendly soap leysir af hólmi einnota blautþurrkur sem margir nota til að taka af farða. Þessi er stór og góður þegar hann er blautur og frekar þéttur í sér og hreinsar vel. 

    Á þennan lista vantar allavega tvennt sem við viljum vekja athygli á.
    Annars vegar er það margnota borðbúnaður þ.e.a.s. diska og skálar og jafnvel glös þó að minnst sé á ferðamálin hér ofar. Það er hins vegar auðvelt að verða sér úti um slíkt í staðin fyrir bunka af einnota pappaborðbúnaði. Líklega eiga flestir einhverskonar plastglös uppi í skáp og jafnvel skálar og diska sem taka má með og nota aftur og aftur.

    Hins vegar eru það blautþurrkur og eldhúsrúllur sem hvort tveggja er algjör óþarfi. Gamlir vasaklútar koma að mjög góðum notum hér. Auðveldlega má líka útbúa klúta/þurrkur úr gömlum sængurverum, lökum, bolum eða öðrum efnum. Sníða níður í hæfilega stóra búta sem nota má í stað einnota blautklúta og eldhúsbréfa. Sem blautklúta er hægt að hita vatn og nota svo ferðasápuna með. Eftir notkun er einfalt að setja klútinn í lítinn poka þangað til heim er komið og hægt er að setja í þvottavél,- bara ekki gleyma þeim í pokanum.  Þessa klúta má líka nota sem eldhúsbréf til að þurrka sér um munn eða af litlum nebbum.

    Við þurfum ekki að gleypa allan heiminn í einum bita en bara eitt einnota kaffimál, þó að það sé sagt umhverfisvænt! hjá hverjum og einum Íslending eru 370 þús. kaffimál. Það er dágóð hrúga!.

    Þess vegna segjum við, það sem þú gerir og það sem þú velur – skiptir máli.

    Njótið sumarsins.

    Til baka í fréttir