Margnota kaffihylki samhæfð fyrir Nespresso kaffivélar

Margnota kaffihylki

Áætlað er að um 59 milljarðar (*1) kaffihylkja séu urðuð á hverju ári og að á hverri mínútu séu notuð um 13.500 hylki. (*2)  Talið er að aðeins um 30% af þessari notkun skili sér til endurvinnslu. Þetta eru svo hrikalegar tölur á það er eiginlega erfitt að ímynda sér umfangið.

Einnota kaffihylki í kaffivélar hafa í langan tíma verið þyrnir í augum okkar hér í Mistrinu og m.a.s höfum við átt það til að afþakka kaffi sem okkur hefur boðist úr þessum vélum, þrátt fyrir gífurlegan kaffiþorsta, eingöngu vegna þessara einnota hylkja. En sumt er komið til að vera og þá er bara að finna umhverfisvænni lausnir til nota þær græjur sem til eru.

Það er okkur því sönn ánægja að kynna nú til sögunar margnota kaffihylki samhæfð fyrir Nespresso og Dolce Gusto kaffivélar. Með góðri umhirðu ættirðu að getað notað þessi hylki svo lengi sem þú drekkur kaffi.

WayCap kaffihylki sem passa fyrir Nespresso

Nespresso samhæfðu hylkin eru úr ryðfríu stáli og koma tvö í pakka ásamt skammtara, þjappara og fjórum mismunandi sigtum. 

Tvö hylki, skammtari, þjappa

Skammtarinn (fyrir miðju á mynd) er sniðug græja því hann gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar er hann notaður til að fylla kaffi á hylkið. Þú setur hylkið undir skammtarann, sem þá virkar sem einskonar trekt og setur kaffið þar í og þjappar. Með þessu móti ætti ekki fara gramm af kaffi til spillis og enginn subbuskapur. Hins vegar fylgja skammtaranum lok og þú getur því notað hann til að taka fullt kaffihylki með þér t.d. í vinnuna og komið þannig í veg fyrir að nota einnota kaffihylki. 

Lokin/sigtin eru með mismunandi mörgum götum svo að þú getir stjórnað styrkleika kaffisins. Framleiðendur WayCap hafa verið að þróa lokin og vatnsstreymið í tvö ár til að ná hámarksgæðum úr kaffinu og bíða nú eftir einkaleyfinu á lausninni. 

Þú getur notað þitt uppáhalds kaffi í hylkin, hvort sem þú malar sjálf/ur eða kaupir malað úti í búð. Mælt er með því að hafa kaffið ekki of fínt malað. 

Það er ákveðin fjárfesting að skipta yfir í margnota kaffihylki en til lengri tíma litið spararðu og verndar umhverfið. 

Passa í eftirfarandi Nespresso vélar; Pixie, Inissia, Essenza*, Essenza Mini, Lattissima, U, U Milk, Milk Citiz, Expert, Prodigio, Maestria, Creatista, Lattissima, Lattissima Touch, Gran Maestria, Kitchen Aid.

*Gamlar Essenza vélar henta ekki fyrir hylkin.

Þar sem hylkin eru úr stáli er ráðlagt að gefa þeim smá stund til að kólna áður en þau eru tæmd. 

Hér er myndband sem sýnir hversu auðvelt er að nota WayCap margnota kaffihylki.

 

____________________________________________________

Við eru að reyna að breyta heiminum, en vitum að maður byrjar á sjálfum sér. Ef þú ert ekki nú þegar á póstlistanum okkar en ert til í slaginn með okkur þá er minnsta mál að skrá sig og fá reglulega frá okkur fréttir, fróðleik og upplýsingar um nýjar vörur.

 

 

*1  *2


Eldri færslur Yngri færslur