Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 6

Moya

Moya Genmaicha lífrænt grænt te, 15 tepokar

Moya Genmaicha lífrænt grænt te, 15 tepokar

Verð 1.045 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.045 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

100 % lífrænt hrísgrjóna te sem hentar einstaklega vel með mat.

Bragð: Sætt með örlitlum hnetukeim.

Litur: Ryðrauður

Upprunaland: Japan 

Kassinn inniheldur 15 lífbrjótanlega te pýramída.

Genmaicha, hrísgrjónate. Genmaicha er sætt og ilmandi ryðrautt te með örlitlum hnetukeim. Bragðið er einstaklega eftirminnilegt eins og þeir þekkja sem hafa farið á ekta japanska veitingastaði eða sushi bari. Sagan segir að þjónn Hakone shogun hafi óvart boðið húsbónda sínum upp á te með nokkrum stolnum hrísgrjónum sem hann var með í vasanum. Þessi mistök kostuðu hann lífið en shoguninum líkaði svo vel við bragðið að hann ákvað að gera það hluta af sínu daglega mataræði. Þetta er hvernig genmaicha, í dag einnig þekkt sem „poppte“, varð til. Það var einu sinni álitið vera drykkur lágstéttarinnar, þar sem fólk bætti ódýrum hrísgrjónum við hreina sencha teið sitt til að drýgja það. Moya Genmaicha er lífrænt ræktað á eyjunni Kyushu.

EIGINLEIKAR:

Genmaicha Genmaicha te inniheldur miðlungs magn af koffíni. Það er venjulega borið fram með máltíðum þar sem það hjálpar meltingarkerfinu. Á löngum föstu tímabilum nærast búddamunkar oft bara á genmaicha tei. Eins og annað japanskt grænt te er genmaicha rík uppspretta katekína (catechins) og andoxunarefna. Að drekka genmaicha getur hjálpað til við að hægja á öldrun, losa út eiturefni í líkamanum, lækka slæma kólesterólið, lækka blóðsykur og bæta tannheilsu. Mælt er með Genmaicha til að koma í veg fyrir ýmsa sjúkdóma þar sem laufin innihalda C-vítamín, beta-karótín, fólínsýru, kalíum, kalsíum og fosfór sem líkamin getur auðveldlega nýtt sé. 

Að laga Genmaicha te:

Magn: 1 tepoki í 200 ml. af vatni

Hiti vatns: 70-80°C

Látið tepokann liggja í 2-3 mínútur. Hægt er að nota sama pokann tvisvar sinnum.

Allt te frá Moya er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.

Sjá allar upplýsingar