Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Mind Studio

Shiitake Sveppadropar - Útgeislun, 50 ml.

Shiitake Sveppadropar - Útgeislun, 50 ml.

Verð 7.490 kr
Verð 0 kr Söluverð 7.490 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.
Gegn öldrun - Styrkir húðina - Útgeislun - Styrkur - D-vítamín

Shiitake droparnir eru frábær viðbót við heilbrigða og heildræna morgunrútínu. Byrjaðu daginn á því að skína.

Shiitake (Lentinula Edodes) er endurnærandi og næringarrík ofurfæða sem getur hjálpað til við að styrkja ónæmiskerfið og stuðla að heilbrigðri meltingu. Þessi sveppur er stundum kallaður lífsins elexír af grasalæknum vegna áhrifa hans á ónæmiskerfið, hjartaheilsu og góðum áhrifum á lækkun kólesteróls.
Shiitake inniheldur mikið af amínósýrum, vítamínum og steinefnum og getur þannig hjálpað til við að viðhalda ljóma húðarinnar og endurheimta heilsu, styrk og vellíðan.

Innihald: Lífrænn Shiitake, hreinsað vatn, etanól 20%, extrakt er 10:1

Í Shiitake sveppnum eru eftirfarandi lífaðgengileg efnasambönd:
β-(1,3)-(1,6)-D-glucans (fjölsykrur), Eritadenine og sterólar.

Shiitake sveppurinn er tíndur í skógum norður Finnlands en varan er fullunnin í Danmörku.
Aðeins sveppirnir sjálfir eru notaðir í framleiðsluna, ekki sveppaþræðirnir, korn eða aukaefni.

Notkun:
2ml (1000mg) skammtur á dag (tvær hálfar pípettur), út í hvaða drykk sem er eða bara beint undir tunguna, mælum með að nota að kvöldi eða seinnipart dags fyrir góða slökun og hugarró.
Lífvirkir sveppir virka best ef þeir eru teknir daglega yfir lengri tíma.

ATH.
Þessi vara telst sem fæðubót samkvæmt íslenskri reglugerð. Ekki skal neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur gefur til kynna. Varan kemur ekki í stað fjölbreytts fæðis og er ekki ætluð til þess að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma.

Mælum með að hafa samband við lækni fyrir notkun ef þú er barnshafandi eða með barn á brjósti.

Geymist við stofuhita og þar sem að börn ná ekki til.

Umbúðir: Dökk glerflaska með pípettu og endurvinnanlegar pappaumbúðir úr FSC.

Vottanir
· EU & USDA Certified Organic
· FSSC 22000 Certification
· Dansk Økologi Mærkning
Sjá allar upplýsingar