Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Lovett Sundries

Sturtukubbar - Piparmynta/eucalytus Lovett Sundries

Sturtukubbar - Piparmynta/eucalytus Lovett Sundries

Verð 5.490 kr
Verð Söluverð 5.490 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Sturtukubbar - Piparmyntu og tröllatré

Langar þig í smá lúxus meðferð heima hjá þér en það er ekkert baðkar fyrir baðsöltin? Það kemur ekki að sök, því að sturtukubbarnir frá Lovett sundries eru dásamlegur og ilmandi lúxus sem þú notar í sturtuna. Eingöngu eru notuð náttúruleg efni við gerð sturtukubbana og sérvaldar blöndur úr ilmkjarnaolíum veita ýmist slakandi eða upplífgandi upplifun.
Í piparmyntu og tröllatrés sturtu kubbunum er endurnærandi blanda af piparmyntu og tröllatrés ilmkjarnaolíum, með viðbættri ögn af rósmarín olíu til að gera blönduna svo öfluga og hressandi að þú þarft að gæta þess að rífa ekki sturtuhengið niður þegar þú ferð upp úr. Slík verður orku innspítingin. Sama gildir um sturtuklefa og sturtugler.
Hver kubbur er vandlega unnin úr náttúrulegum innihaldsefnum, þar með talið matarsóda, örvarrótardufti og apríkósuolíu - allt efni sem eru mild fyrir húðina. Kubbarnir koma sex saman í krukku (45g hver) og eru mjög einfaldir í notkun - þú bara leggur einn í botninn á sturtunni, án þess að bunan streymi beint á hann (þú vilt ekki að hann leysist upp í einni sturtuferð) og nýtur þess að baða öll skilningarvitin í dásamlegum ilm og sælu. Hver kubbur endist samtals í um 20-30 mínútur.
Þyngd: 6x45 gr.
Umbúðir: Glerkrukka með áskrúfuðu málmloki
Framleitt í Bandaríkjunum.


Innihald:
Matarsódi (sodium bicarbonate)
Sítrónusýra (citric acid)
Örvarrótarduft (maranta arundinacea root)
Franskur, grænn leir (illite)
Epsom salt (magnesium sulfate)
Apríkósu olía (prunus armeniaca kernel oil)
Piparmyntu ilmkjarnaolía (mentha arvensis)
Nornahesli (hamamelis virginiana)
Rósmarín ilmkjarnaolía (rosmarinus officinalis)
Tröllatrés ilmkjarnaolía (eucalyptus globulus)

Sjá allar upplýsingar