Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Lovett Sundries

Sturtukubbar - Bland ilmir. Lovett Sundries

Sturtukubbar - Bland ilmir. Lovett Sundries

Verð 5.490 kr
Verð Söluverð 5.490 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Sturtukubbar - 3 tegundir.

Langar þig í smá lúxus meðferð heima hjá þér en það er ekkert baðkar fyrir baðsöltin? Það kemur ekki að sök, því að sturtukubbarnir frá Lovett Sundries eru dásamlegir og ilmandi lúxus sem þú notar í sturtuna. Eingöngu eru notuð náttúruleg efni við gerð sturtukubbana og sérvaldar blöndur úr ilmkjarnaolíum veita ýmist slakandi eða upplífgandi upplifun. 

Í sítrus sturtukubbunum blandast saman hressandi ilmir af sítrónugrasi og bergamot ásamt endurnærandi ilm af tröllatré og piparmyntu, sem saman skapa upplífgandi og hressandi upplifun.

Hver kubbur er vandlega unnin úr náttúrulegum innihaldsefnum, þar með talið matarsóda, örvarrótardufti og apríkósuolíu - allt efni sem eru mild fyrir húðina. Kubbarnir koma sex saman í krukku (45g hver) og eru mjög einfaldir í notkun - þú bara leggur einn í botninn á sturtunni, án þess að bunan streymi beint á hann (þú vilt ekki að hann leysist upp í einni sturtuferð) og nýtur þess að baða öll skilningarvitin í dásamlegum ilm og sælu. Hver kubbur endist samtals í um 20-30 mínútur.

Þyngd: 6x45 gr.
Umbúðir: Glerkrukka með áskrúfuðu málmloki
Framleitt í Bandaríkjunum

Sjá innihaldslýsingu á Piparmyntu/Eucalyptus .

Sjá innihaldslýsingu á Lavender/Rós

Sjá innihaldslýsingu á Sítrus

Sjá allar upplýsingar