Neat Startpakki Anti Bac alhliða Mango&fíkju
Neat Startpakki Anti Bac alhliða Mango&fíkju

Neat Startpakki Anti Bac alhliða Mango&fíkju

Venjulegt verð 2.240 kr

Startpakkinn inniheldur þykkni og álbrúsa með góðum úðahaus - allt sem þarf til að byrja.

Náðu öllum yfirborðsflötum á heimilinu skínandi hreinum með þessum marghliða fjölhreinsi sem angar af mildum ilmi af sjávargrasi og lotus. Hentar vel á flest alla fleti í eldhúsinu, gluggakistur og víðar. Fyrir daglega yfirferð og fyrir allar óvæntu uppákomurnar sem gera sig gjarnan heimakomnar þegar síst skyldi.

Fjölhreinsirinn hentar á flest allt yfirborð, þar með talið tré, gler, stál, flísar, fægðan stein, granít og marmara. Hann hentar ekki fyrir ómeðhöndlaðan stein, granít eða marmara. Mælt er með því að prófa hreinsinn á litlum fleti fyrir notkun.

Mildur mangóilmur með snert af kryddaðri og sætri fíkju gefur heimilinu mjúkan angan.

ATH. 99.9% bakteríudrepandi

Pakkinn inniheldur:

  • 500 ml. úðabrúsa úr áli.
  • 1x 30 ml. plastlaust gler og speglahreinsiþykkni í glerflösku með áltappa.
  • Þykknin hellist út í 470 ml. af köldu vatni og úr verða 500 ml. af fljótandi hreinsilegi.

Pakkinn innheldur EKKI

  • Litarefni
  • Paraben
  • Fosfór
  • Ammoniak
  • Bleikiefni
  • Súlfat

Vörurnar eru ekki prófaðar á dýrum og henta vegan lífsstíl

Framleitt í Bretlandi.

Vinsamlegast athugið:

  • ATH. Þar sem þykknið er óblandað bera að umgangst það af fullri varúð. Lesið leiðbeiningar á umbúðum
  • Látið börn ekki leika sér með vöruna
  • Látið yfirborðsfleti þorna alveg áður en gæludýr komast í snertingu við þá
  • Getur orsakað ofnæmisviðbrögð
  • Mælt er með að prófa efnið fyrst á litlum fleti

Um þykkninn:
Einföldu lausnirnar eru oft bestar. Venjulegur hreinsilögur er allt að 90% vatn og því aðeins 10% virk efni, sem er fluttur heimshornanna á milli með tilheyrandi umhverfisáhrifum. Þykknið sparar því verulega í flutningskostnaði og margnota ál úðaflaskan minnkar sóun og rusl. Þykknið kemur í glerflösku með áltappa sem er hvoru tveggja endurvinnanlegt.

Um álflöskuna
Margnota, létt og endingargóð úðaflaska úr áli, húðuð með þunnu sílikoni sem gefur betra grip. Úðari í hæsta gæðaflokki sem stenst langtíma notkun. Sílikon botn flöskunnar tryggir stöðugleika hennar og verndar húsmuni. Hönnuð með endingu og notagildi í huga.

  • Hráefni: Ál, sílikon.
  • Mál: 245 x 70 x 90 mm

Umhirða: skolið með köldu vatni, fyllið og úðið þar til úðarinn er hreinn. Tæmið flöskuna og hún er tilbúin fyrir næstu áfyllingu.

Innihaldsefni
Magnó og fíkjuilmur: 5-15% ójónuð yfirborðsvirk efni, ilmefni, <5% katjónísk yfirborðsvirk efni, rotvarnarefni

• Vatn – Eimað vatn til að viðhalda lausninni
• Alkóhól etoxýlat – milt ójónuð yfirborðsvirk efni til að vinna á fitu
• Bensalkónklóríð – örverudrepandi rotvarnarefni
• Lauramín oxíð – milt-freyðandi yfirborðsvirkt efni, súlfatlaust og unnið úr jurtaríkinu
• Fenoxýetanól – rotvarnarefni án parabena
• Trínatríumdíkarboxýmetýlalanínat – mýkingarefni, hindrar dropamyndun
• PPG-2 Methyl ether – leysiefni, eykur þrifgetu
• PEG-20 Sorbitan Oleate – ójónað yfirborðsvirkt efni úr jurtaríkinu, eykur fituleysni
• Ilmefni – blanda af náttúrulegra ilmefna til að fríska upp á heimilið þitt

Umsagnir

Byggt á 1 umsögn Skrifa umsögn

Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki