Revive - sápa
Revive - sápa

Revive - sápa

Venjulegt verð 1.490 kr

 

Nærandi sápustykki fyrir allan líkamann, stútfullt af mildum lífrænum innihaldsefnum. Revive sápan er með virkum kolum og skrúbbar húðina vel og gerir kraftaverk í hreinsun og afeitrun. Kolin draga óhreinindi og eiturefni úr húðinni og veita þannig góða djúphreinsun. Kolin sem notuð eru koma úr harðviði úr bresku FSC löggiltu skóglendi og eru bæði mild og áhrifarík. Þau eru tilvalin fyrir feita, blandaða og blettótta húð.
Hvert sápustykki er einstak þar sem það er handgert á vinnustofu Nathalie Bond.

Framleitt úr vottuðum lífrænum hráefnum

  • +100% náttúruleg
  • +76% lífræn
  • 100% endurvinnanlegar og plastlausar umbúðir
  • Hentar fyrir vegan
  • Þyngd: 100 gr.

Notkun
Nuddið sápunni á raka húð þar til freyðir og skolið vel á eftir.
Varist að láta sápuna berast í augu. Ráðlagt er að nota sápuna innan sex mánaða eftir opnun umbúða. Á milli þess sem sápan er notuð mælum við með að láta hana standa þar sem vatn getur runnið af henni.

INNIHALD: Natríum kókóat **, natríumólivat **, natríum shea butterate **, vatn, glýserín *, natríum castorate **, mentha piperita olía, tröllatré globulus olía, virk kol

  • *Lífrænt hráefni
  • **Með lífrænum hráefnum

Innihaldslýsing getur breyst án fyrirvara, vinsamlegast skoðið innihaldslýsingu á umbúðum til að sjá nýjasta innihaldsefnalistann.

------

Þau hjá Nathalie Bond hafa búið til línu af vegan vænum sápustykkjum sem eru 100% náttúrulegar, án parabena og eiturefna og hafa ekki verið prófaðar á dýrum. Hinar mildu og alhliða sápur samanstanda af hreinum ilmkjarnaolíum með silkimjúkum leir, vítamínum og kaldpressuðum olíum sem hreinsa án þess að þurrka húðina. Sápurnar eru alveg án pálmaolíu.

Að meðaltali bera konur 168 eiturefni daglega á húðina og eru jafnvel ekki meðvitaðar um hvaða áhrif þessi efni geta haft til langs tíma á heilsu þeirra eða umhverfið. Hugmyndafræðin á bak við stefnu Nathalie Bond er ,,minna er meira” og þess vegna nota þau aðeins mild náttúruleg hráefni í vörurnar sínar.


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki