Moya matcha DAILY lífrænt 30 gr.
Moya matcha DAILY lífrænt 30 gr.

Moya matcha DAILY lífrænt 30 gr.

Venjulegt verð 2.190 kr

Daily

Hágæða lífræn matcha með sterku grænu tebragði og langvarandi keim. Hefur sterkara og bitrara bragð miðað við hærri flokka af matcha. Matcha daily er fullkomið val fyrir áhugafólk um grænt te og tilvalið hráefni fyrir smoothies, ís og bakstur. Hágæða lífrænnt matcha úr  2. og 3. uppskeru úr teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi. skyggingin leiðir til hærra blaðgrænu og L-Theanine innihalds og sterkari grænum lit. Fersku laufunum er síðan safnað saman, þurrkað og malað í duft.

Upprunaland: Japan
Bragð: Sterkt grænt tebragð og langvarandi eftirkeimur
Mælt með í: Matcha latte, matcha límonaði, matcha kokteila, kökur, sælgæti, ís, súkkulaði
Innihald:
100% lífrænt vottað matcha grænt te úr laufblöðum úr annari og þriðju uppskeru.

Magn: 30 gr. 

Hvernig.

Hefðbundin leið til að undirbúa matcha kemur frá japönsku teathöfninni. Það felur í sér að nota matcha skál, bambus pískara –chasen- og bambus skeið -chashaku. Settu 2 chashaku skeiðar af matcha (1,5 g) í matcha skál og helltu 100 ml af heitu vatni yfir (ekki heitara en 80 °C). Þeytið matcha kröftuglega með pískaranum, frá úlnliðnum í m-laga, ekki hringlaga, hreyfingu. Eftir um það bil 20 sekúndur ætti að hafa myndast fullkominni jade-græn froða. Þegar búið er að þeyta teið getur þú bætt við meira vatni til að gera það daufara.

Það er álíka auðvelt að blanda matcha saman með litlum hand mjólkuflóara. Bætið flatri teskeið af matcha (1,5 g) í bolla eða glas og hellið 100 ml af heitu vatni í glasið. Blandið vel saman og bætið meira vatni við ef vill. 1 teskeið gefur þér venjulega 200-250ml af matcha drykk. Rétt eins og með kaffi finnst sumum gott að drekka sterkan matcha espresso, aðrir vilja frekar bæta við vatni. Þú getur líka blandað matcha saman við safa eða mjólk.

Þú getur undirbúið matcha þinn ótrúlega hratt í glerhristara eða í venjulegri flösku: bættu bara matcha við vökva að eigin vali (vatn, safi eða mjólk), hristu og teið er tilbúið!

Matcha Latte Undirbúningur: Blandið einni teskeið af matcha saman við lítinn skammt af heitu vatni. Bætið heitri mjólk út í. Þú getur sætt matcha latte með skeið af hunangi, hlynsírópi eða agave sýrópi.

Moya matcha Daily fæst úr fyrstu og annari uppskeru úr teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi. Skyggingin leiðir til hærri blaðgrænu og L-Theanine innihalds og ríkari grænum lit. Fersku laufunum er síðan safnað saman, þau þurrkuð og möluð í duft. Moya matcha Daily hefur sterkt grænt tebrað og langvarandi eftirkeim. Það má útbúa með hefðbundnum hætti í matcha skál eða einfaldlega í hristara.

Um Moya matcha

Moya Matcha Traditional er ræktað í Uji-héraði í Kyoto, en það er þekkt fyrir ræktun á hágæða grænu tei í yfir 800 ár. Uji-svæðið er frægt fyrir frjósaman jarðveg og hreint vatn. Grænu teplönturnar þar búa við kjöraðstæður til vaxtar þökk sé hæðum sem veita gott sólarljós og algengs þokumisturs sem verja viðkvæm blöð fyrir frosti og mikilli úrkomu. Moya Matcha er vandlega ræktað og uppskorið á litlum lífrænum teökrum í eigu hverra fjölskyldu. Það er síðan unnið á staðnum í Japan og sent í litlum lotum til að tryggja hámarks ferskleika fyrir allar tegundirnar okkar. Þetta hjálpar til við að varðveita alla eiginleika teblaðsins og viðhalda miklu magni steinefna og andoxunarefna.

Moya Matcha er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki