Pottjárnshreinsir 600 gr.
Pottjárnshreinsir 600 gr.
Pottjárnshreinsir 600 gr.

Pottjárnshreinsir 600 gr.

Venjulegt verð 4.790 kr

Hefur þig alltaf langað að nota gömlu pottjárnspönnuna eða pottinn sem amma átti en ekki þorað af hræðslu við að allt myndi festast á henni? Þessi harðduglegi skrúbbur gerir þrif á áhöldum úr pottjárni auðveld og þægileg og auðveldar þar af leiðandi notkun á þeim og eykur þar með endingartíma.

Eftir eldun; skrúbba, skola og hita áhaldið aftur og það mun koma þér á óvart hversu sleip þau verða og rúsínan í pylsuendanum er sú að lítið sem ekkert festist við pönnuna.

Eftir matreiðslu - notkun

  • Skolaðu matarleifar af pönnuninni/pottinum með volgu vatni
  • Settu eina matskeið af skrúbbnum í pottinn/pönnuna og skrúbbaðu hreint
  • Skolaðu salt og olíu af áhaldinu með heitu vatni og ekki nota sápu
  • Settu áhaldið á eldavélina og kveiktu undir til að hita aftur
  • Þurrkaðu umfram vatn og olíu af áhaldinu
  • Þegar rjúka fer úr pönnunni/pottinum er mál að taka af hitanum og láta kóln hægt og rólega.

Innihald:
Sjávarsalt
Kókosolía
Hörfræolía
Laxerolía

600 gr.
Umbúðir: Glerkrukka með álloki
Handgert í Bandaríkjunum.


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki