Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Pulito

Ferhyrnd frostpinnamót úr stáli

Ferhyrnd frostpinnamót úr stáli

Verð 8.190 kr
Verð Söluverð 8.190 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Með VSK.

Gerðu þinn eigin frostpinna úr djúsi, bústi eða öðru girnilegu hráefni…og þú veist nákvæmlega hvað er í þínum frostpinna. Í pakkanum eru mót fyrir sex frostpinna og 30 bambuspinna sem má þvo í uppþvottavél og nota aftur og aftur.

Auðvelt í notkun, auðvelt í þrifum og með góðri umhirðu gæti það endst þér alla ævi. Hannað með það í huga að þú getir tekið einn frostpinna úr í einu eða fyllt einn í einu.

Til að losa pinnann úr mótinu er hægt að halda um mótið í skamma stund og látið hitann úr lófanum losa mótið eða skella örsnöggt undir rennandi vatn – það losnar mjög fljótt þannig.

Frostpinnasettið samanstendur af:

  • einum standi
  • sex formum
  • sex lokum
  • 12 silikonhringjum sem halda spítunum á sínum stað
  • 30 endurnýtanlegum frostpinnaspítum úr bambus

Notkun og umhirða

  • Hvert mót rúmar 80 ml.
  • Ekki fylla ílátið alveg í top – gott er að skilja eftir 2-3 mm til að gera ráð fyrir þennslu vegna frostsins.
  • Þvoðið í volgu sápuvatni fyrir notkun
  • Má fara í uppþvottavél
  • Geymist á þurrum og köldum stað á milli notkunnar.

Ryðfrítt stál ætlað matvælum
Án: BPA, þungmálma og annara innkirtlatruflandi efna.

Framleitt í Kína

FSC umbúðir

 

Sjá allar upplýsingar