Vöruflokkur: East of India

East of India er breskt fyrirtæki með rætur í Bali, þar sem hugmyndin að fyrirtækinu fæddist á ferðalagi á þeim slóðum árið 1991. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og bætt við sig starfsfóki bæði á Bali og í Bretlandi. Vörurnar eru að mestu leyti handgerðar á Austurlöndum eftir hugmyndum frá bresku handverskfólki. Frá upphafi hefur stefnan verið að nýta og endurnýta allt hráefni til fulls og með tilliti til umhverfissjónarmiða. Vörurnar frá East of India samræmast því vel stefnu okkar í Mistur.