Lífrænn svitalyktareyðir m/lavender 60 ml. Naturlig Deo
Lífrænn svitalyktareyðir m/lavender 60 ml. Naturlig Deo

Lífrænn svitalyktareyðir m/lavender 60 ml. Naturlig Deo

Venjulegt verð 3.160 kr
Náttúrulegt svitakrem með ferskum lavanderilmi sem hentar báðum kynjum og fólki á öllum aldri.
  • Kemur í veg fyrir svita og drekkur í sig raka á náttúrulegan hátt
  • Án: Áls, alkóhóls, kemískra efna og annara íblöndunarefna. 
  • Betri valmöguleiki fyrir men og umhverfi.
  • Lífrænt, vegan og hentar báðum kynjum

Naturlig Deo er lífrænn, kremkenndur svitalyktareyðir sem framleiddur er úr örfáum sérvöldum náttúrulegum efnum þar sem tekið er fullt tillit til manna, dýra og náttúrunnar. Hann er án áls, alkóhóls, kemískra efna og annara íblöndunarefna. 

Notkun: Taktu smá krem úr krukkunni með fingrunum og berðu þunnt lag á þurra húðina í sitthvorn handakrikann. Leyfðu kreminu að þorna áður en þú klæðir þig, gæti tekið u.þ.b eina mínútu. Ekki setja aðra umferð.

Leiðbeiningar: Notið ekki ef húðin er viðkvæm eða skrámuð Hættu notkun strax ef þú færð útbrot eða kláða. Geymist við stofuhita en athugið að kremið verður þynnra í stofuhita.

Gott að vita.Sumum finnst eins og þeir svitni og/eða lykti meira fyrst á eftir að notkun hefðbundins svitalyktaeyðis með áli er hætt. Ef þetta er eitthvað sem þú kannst við, berðu þá svitakremið oftar á þig eða eftir þörf. Ekki er ráðlagt að bera kremið á sig strax eftir rakstur eða á meðan húðin er enn aum. Hæfilegt og vel gerlegt er að raka að kvöldi og bera kremið svo á sig næsta morgun því kremið eyðir þeirri lykt sem þá er komin.

Innihald og eiginleikar.

  • Lífræn lyktarlaus kókosolía (rakagefandi og bakteríudrepandi)
  • Lífræn kornsterkja (gleypir raka) 
  • Matarsódi (upprætir svitalykt)
  • Lífræn jójóbaolía ( mjúk og rakagefandi)
  • Lífrænt Carnauba vax (verndar og þykkir) 
  • Lífræn lavender olía (bakteríudrepandi og náttúrulegur ilmur)


Innihald: Cocos Nucifera Oil, Zea Mays Starch, Sodium Bicarbonate, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Copernicia Cerifera Cera, Lavandula Angustifolia Oil, Linalool *, Limonene *, Geraniol *.
* from the lavender oil.

15 ml. krukka. Frábær stærð til að prófa kremið eða taka með í ferðlagið. Þessi stærð getur enst í allt að þrjár vikur.

60 ml. krukka. Getur enst í þrjá mánuði eða lengur. Fer eftir notkun.

Umsagnir

Byggt á 2 umsögnum Skrifa umsögn

Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki