Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Ylang Ylang ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml.

Ylang Ylang ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml.

Verð 3.895 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.895 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Ylang ylang (Cananga odorata).

Þessi olía er svokölluð Ylang ylang complete, en þá tekur eimingin lengri tíma eða allt frá 6 - 18 klst og olían hefur mjög mikinn ilm.

Helsta virkni Ylang ylang er að hún er slakandi og róar taugakerfið og hjálpar til við að koma jafnvægi á hormónakerfi kvenna. Ylang ylang getur stuðlað að aukinni serótónín framleiðslu, er verkjastillandi og getur hjálpað til við að lækka blóðþrýsting. Hún er góð fyrir feita og blandaða húð og á unglingabólur. Hún hefur græðandi eiginleika og getur reynst vel á skordýrabit. Gott er að blanda Ylang ylang í sjampó og hárolíur þar sem hún hefur góð áhrif á hárvöxt og getur verndað hárið fyrir t.d. salti og sól.

Olían er unnin með gufueimingu úr blómunum og er mið - hátóna.

Ylang ylang blandast mjög vel með bergamot, grapefruit, lavender og sandalvið.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Madagaskar.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar