Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Mandarínu ilmkjarnaolía rauð lífræn, 10 ml

Mandarínu ilmkjarnaolía rauð lífræn, 10 ml

Verð 1.865 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.865 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Mandarin red (Citrus nobilis).

Mandarínu ilmkjarnaolía er helst þekkt fyrir róandi eiginleika sína og er ótrúlega góð til að takast á við svefnleysi, taugaveiklun og kvíða. Þessi olía hentar börnum mjög vel og reynist oft betur en lavender við kvíða og svefnleysi og einnig til að róa börn sem hafa tilhneigingu til ofvirkni.

Olían er unnin með kaldpressun ú berkinum og er hátóna.

Munurinn á rauðri mandarínuolíu og þeirri venjulegu er aðeins hinn djúpi appelsínuguli (næstum rauður) litur.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu en aðeins 10 dropa ef blandan er fyrir mjög ung börn.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Italía.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar