Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Clary sage ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml

Clary sage ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml

Verð 3.295 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.295 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Clary sage (Salvia sclarea).

Clary sage er bæði róandi og upplífgandi og er mest notuð til að koma jafnvægi á hormónakerfi kvenna, t.d. með því að nota hana í líkamsnudd og getur hún létt á einkennum fyrirtíðaspennu. Hún getur líka reynst gagnleg á breytingaskeiðinu.
Hana má nota í líkamsnudd og í ilmolíudreifara til að vinna gegn streitu og kvíða og er líka hjálpleg til að lækka blóðþrýsting. Clary sage er bakteríudrepandi og minnkar þrota í húð, má nota á feita og blandaða húð þ.á.m. unglingabólur.

Olían er unnin með gufueimingu úr laufum og er mið - hátóna.

ATH. Þessi olía er mjög róandi og er því best að nota seinni hluta dags eða á kvöldin. Konur sem eru á pillunni eða í hormónameðferð ættu að byrja að nota olíuna hægt og rólega til að sjá hvernig líkaminn bregst við.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Austur Evrópa.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar