Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Bergamot ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml

Bergamot ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml

Verð 3.575 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.575 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Bergamot (Citrus aurantium bergamia).

Aðal virkni bergamot olíunnar er fyrir skammdegisþunglyndi. Innöndun bergamot olíu getur örvað heilann til að losa taugaboðefnin serótónín og dópamín, lykilhormón sem stjórna skapi og vellíðan.
Bergamot má einnig nota í blöndur til að fæla burtu flugur og einnig getur hún reynst vel á bit.

Bergamot ilmkjarnaolían hefur dásamlegan sítruskeim og er mikið notuð í ilmvatnsgerð og sem bragðefni.

Olían er unnin með kaldpressun út berkinum og er hátóna.

Bergamot blandast vel með flest öllum öðrum ilmkjarnaolíum en sérstaklega vel með lavender, lárviðarlaufi, sandalvið, appelsínu og Ylang Ylang.

ATH. Bergamot olían inniheldur efnið Furocumarin sem að gerir húðina ljósnæmari og viðkvæmari fyrir sól þannig að mikilvægt er að nota sólarvörn áður en farið er út.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Sikiley/ Ítalía.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar