Sveppaferð Misturs og Guðríðar Gyðu sveppafræðings
Share
Á fimmtudaginn kemur, þann 13. ágúst nk. leggjum við land undir fót hér á höfuðborgarsvæðinu og smellum okkur í sveppaferð. Með í för verður Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur og Yfirvaldið á Facebookhópnum Funga Íslands - sveppir ætir eður ei" en hún á mikinn heiður skilinn fyrir óeigingjarnt starf og fræðslu á þeim vettvangi.

Ætlunin er að fræðast um sveppi í íslenskri náttúru, hverjir eru ætir og hvaða sveppi ber að varast. Guðríður Gyða mun fræða þátttakendur um það sem þeir geta mögulega fundið á svæðinu áður en gestir tölta af stað í leit að sínum eigin sveppum. Þegar þeir snúa til baka mun Guðríður hjálpa þeim að greina sveppina og segja meira frá þeim. Einnig er stefnt á að verka sveppi, elda og gefa gestum færi á að smakka og í leiðinni sjá hvernig er gott að bera sig að við verkun á sveppum eftir tínslu.
Þátttakendum er bent á að taka með sér;
- sveppahníf, - getur líka pantað hér og við komum með hann á fimmtudaginn.
- körfu og mögulega grisju yfir hana,
- annað víðbotna ílát fyrir sveppi sem fólk þekkir ekki til að halda þeim aðgreindum.
- stækkunargler
Gott er að vera vel skóaður og hafa með sér vatnsflösku.
Þátttökugjald er 2000 kr. og hægt er að kaupa aðgang hér. Frítt fyrir börn að fermingu.
Viðburðurinn hefst kl. 17:30 og áætluð lengd er 1,5 - 2 klst.
Nánari staðsetning verður send í tölvupósti á þátttakendur þegar nær dregur. Því er nauðsynlegt að fylla út netfang.