Ný jurtalína í Mistur

Kynnum nýju jurtalínuna okkar.

Náttúran er með þér í liði.

Við hjá Mistur erum afar hreyknar og stoltar af því að kynna nýjustu vörulínuna okkar: Hágæða jurtalínu sem er sérstaklega valin til að færa þér kraft náttúrunnar beint í bollann heima. Þessar dásamlegu jurtir eru hreinar og fullkomnar til að gera sér góðan bolla af tei eða nota með þeim hætti sem hentar þér best.

Náttúruleg gæði
Jurtirnar eru ræktaðar í sátt við náttúruna, lausar við öll tilbúin efni og eiturefni og þú getur þvi notið þeirra í sínu hreinasta formi. Við leggjum alltaf mikinn metnað í gæðin og allar jurtirnar sem við bjóðum uppá er pakkað af alúð hér á Íslandi. 

Græðandi hefðir í aldanna rás
Frá upphafi vega hefur mannkynið leitað til jurta úr náttúrunni til aðhlynningar, næringar og vellíðunar. Allt frá tímum fornmanna og fram til dagsins í dag hafa jurtir skipað stóran sess í lífi fólks um allan heim. Í stað þess að fara yfir græðandi mátt jurtanna má horfa til þess hvernig þessi iðandi græna veröld hefur löngum verið samofin daglegu lífi fólks sem vill hlúa vel að sér og sínum.

Hvað er í boði núna?
Strax í dag getur þú fundið eftirfarandi jurtir hjá okkur, bæði á vef og í verslun en við  komum til með að stækka vöruúrvalið okkar hratt, örugglega og eftir eftirspurn. 
Hvort sem þig langar að blanda þitt eigið sérsniðna te, drekka eina og eina plöntu eða bæta jurtablöndum við rútínuna þína, þá er þessi lína fullkomin fyrir þig.

Skoðaðu úrvalið og finndu þína uppáhalds jurt í vefverslun okkar eða hjá okkur á Stórhöfða 33.


Til baka í fréttir