Sumartímar og hæglæti í Mistur

Sumarfrí á laugardögum: Tökum því rólega í hæglætisversluninni Mistur
Sumarið er loksins mætt (eða að minnsta kosti samkvæmt dagatalinu) og við ætlum að fylgja hjartanu og tileinka okkur sanna hæglætisverslun á næstu mánuðum. Hæglæti snýst jú um að njóta líðandi stundar, hægja á taktinum og eyða tíma með fólkinu sínu og úti í náttúrunni – og það ætlum við að gera.

Lokað á laugardögum í sumar
Til þess að við getum hlaðið batteríin, skellt okkur í útilegur og notið íslenska sumarsins, ætlum við að hafa lokað hjá okkur á laugardögum í allt sumar. Við opnum svo aftur á laugardögum með pompi og prakt í haust um það leiti þegar rútínan mætir aftur.

En… hvað ef það rignir? 
Við þekkjum íslenska sumarið. Ef það spáir algjörri hundslappadrífu, roki og akkúrat engu útilegufæri, nennum við tæplega að sitja inni í tjaldi eða hamast í að festa niður stög og fergja tjaldið svo að það fjúki ekki. Í slíkum tilfellum gætum við tekið upp á því að opna búðina alveg óvænt á laugardegi.

Ef við ákveðum að flýja rigninguna og opna dyrnar á Stórhöfðanum, munum við auglýsa það sérstaklega á samfélagsmiðlum okkar (Instagram og Facebook). Það borgar sig því að fylgjast vel með okkur þar ef veðurútlitið er grátt.

Við þökkum ykkur kærlega fyrir skilninginn og stuðninginn við hæglætisstefnuna okkar.

Eigið dásamlegt sumar og sjáumst hressa á virkum dögum frá kl. 11-17.



Til baka í fréttir