Augment Life - nýtt bætiefnamerki í Mistur
Share
Augment Life er nýtt vörumerki hjá okkur í Mistur sem við höfum beðið töluvert lengi eftir að geta kynnt fyrir þér. Markmið þeirra er að fólk geti hámarkað gæði hvers dags.
Hvernig getur Augment Life hjálpað þér að blómstra?
Heilsurækt snýst ekki lengur bara um að mæta í ræktina og borða grænmetið sitt. Í dag viljum við hámarka orkuna, hægja á öldrunarmerkjum líkamans og tryggja að frumurnar okkar starfi á fullum afköstum. Þetta er oft kallað biohacking eða lífhönnun – og það er einmitt þar sem vörumerkið Augment Life kemur sterkt inn.
Augment Life leggur áherslu á vísindalega studd bætiefni sem fókusa á langlífi (e. longevity), frumuheilsu og daglega vellíðan. Hylkin og duftin frá þeim eru hrein, markviss og hönnuð fyrir fólk sem vill ná því besta út úr lífinu.
Nú færðu frábært úrval af þessum hágæða vörum hjá okkur í Mistur, en kíkjum aðeins nánar á bæði fyrirtækið Augment Life og þær lykilvörur sem þú færð hjá okkur.
Þýsk gæði, vísindi og 100% plastlausar umbúðir
Augment Life er ungt og kraftmikið þýskt fyrirtæki, stofnað árið 2022 í Berlín. Stofnandi þess, Thomas Hillard, fór af stað með þá hugsjón að skapa bætiefnalínu sem byggir á algjöru gagnsæi, hreinleika og áreiðanleika. Í dag starfar alþjóðlegt teymi vísindamanna, næringarfræðinga og doktorsnema að þróun varanna í hjarta nýsköpunarinnar í Berlín.
Fyrirtækið sker sig verulega úr þegar kemur að umhverfismálum og sjálfbærni. Þau hafa tekið þá ströngu stefnu að nota aldrei plast í umbúðir utan um vörurnar sínar, sem er okkur algjörlega að skapi. Öll bætiefnin koma í vistvænum pappírsílátum eða gleri, sem gerir þau að frábæru vali fyrir þá sem vilja minnka umhverfisspor sitt.
Þegar kemur að vottunum og öryggi, þá treystir Augment Life ekki blindandi á upplýsingar frá birgjum. Öll hráefni fara í gegnum strangar gæðaprófanir hjá óháðum rannsóknarstofum í Evrópu (t.d. The BAV Institut, JS Hamilton og Eurofins) til að tryggja hreinleika, mæla þungmálma og staðfesta að innihaldið passi 100% við það sem stendur á miðanum.
Lykilvörur Augment Life sem þú finnur hjá okkur í Mistur:
Fyrir frumuorku og langlífi: NMN (Nicotinamid)
Ef þú fylgist með nýjustu straumum í heilsuvísindum hefurðu líklega heyrt minnst á NMN. Þetta magnaða efni hjálpar líkamanum að framleiða NAD+, sem er eldsneytið sem frumurnar okkar þurfa til að viðhalda lífsþróttinum. Með aldrinum minnkar þessi framleiðsla, en NMN frá Augment Life styður við frumuorkuna svo þú finnir fyrir meiri lífsþrótti dags daglega. 
Konungur steinefnanna: Magnesium Glycinate
Magnesíum er nauðsynlegt fyrir yfir 300 efnaskiptaferli í líkamanum. Magnesium Glycinate frá Augment Life er formúla sem frásogast einstaklega vel í líkamanum og fer mjög vel í maga. Fullkomið fyrir kvöldið til að róa taugakerfið og undirbúa fyrir dýpri svefn.
Sterkasta parið: D3 + K2 vítamín
Við vitum sennilega öll að D-vítamín er algjör nauðsyn. En vissir þú að það virkar miklu betur með K2-vítamíni? D3 hjálpar líkamanum að taka upp kalk, en K2 sér til þess að kalkið rati á rétta staði – í beinin og tennurnar – en safnist ekki upp í æðunum. D3+K2 blandan frá Augment Life tryggir hámarksvirkni í hverju hylki.
Einbeiting og þrek: Panax Ginseng & Green Tea Extract
Vantar þig náttúrulegt „búst“ á daginn? Panax Ginseng er þekkt adaptogen jurt sem styður við einbeitingu og minni, á meðan Green Tea Extract er stútfullt af andoxunarefnum sem verja frumurnar gegn oxunarálagi.
Fyrir útlitið og ræktina: Kollagen og Creatine
Hreint Kollagen duft styður við teygjanleika húðarinnar, hár og liði, á meðan Creatine Monohydrate bætir vöðvastyrk og flýtir fyrir endurheimt eftir æfingar.
Svo er hér einföld hugmynd fyrir þig sem þú gert að þinni daglegu rútínu:
- Morgnar: D3+K2 fyrir ónæmiskerfið, ásamt grænu tei eða Ginseng fyrir skýran huga.
- Eftir æfingu: Skelltu einni skeið af kollageni og kreatíni út í þeytinginn þinn.
- Kvöldstundir: Magnesíum hylki rétt fyrir svefninn til að tryggja góða hvíld.
Við mælum með að kynna sér Augment Life vel og vandlega hér hjá okkur og ef þú smellir á myndina hér fyrir neðan getur skoðað það sem nú þegar er komið í hús.


