Hvað er propolis?


Leyndarmál býflugnabúsins: Allt sem þú þarft að vita um Propolis frá Bee & You

Þegar fólk hugsar um býflugur dettur flestum hunang fyrst í hug. En íbúar býflugnabúsins framleiða annað og mun sjaldgæfara efni sem hefur notið gríðarlegra vinsælda í heilsuheiminum á undanförnum árum. Þetta efni heitir propolis (stundum kallað býflugnalím). En, propolis er alls ekki nýtt af nálinni því það hefur verið notað í þúsundir ára.

Mörg þúsund ára saga

Propolis á sér mjög langa sögu úti í hinum stóra heimi og hefur fylgt mannkyninu allt frá elstu siðmenningum. Egyptar til forna voru meðal þeirra fyrstu til að nýta magnaða varðveislueiginleika þess við smurningu múmía, en það voru Grikkir sem gáfu efninu nafn sitt. Nafnið propolis þýðir bókstaflega „fyrir framan borgina“, sem vísar til þess hvernig býflugur nota þetta fljótandi gull til að verja bú sitt gegn utanaðkomandi ógnum. Í Grikklandi og Rómaveldi til forna var efnið ómissandi hluti af lækningum; Hippókrates nýtti það til að græða sár og ígerðir, og rómverskir hermenn báru það með sér á vígvöllinn til að sótthreinsa. Eftir fall Róamveldis minnkaði notkun propolis í læknavísindum en þekkingin lifði áfram í þjóðtrú og alþýðulækningum. Á 17. öld rataði propolis aftur á opinberar lyfjaskrá sem lyf og í Búastríðinu og fyrri heimstyrjöldinni var það mikið notað af herlæknum til þess að draga úr sýkingum hermanna og hlaut fyrir vikið viðurnefnið „rússneskt pensilín“.

En aftur til nútímans

Ef þú hefur skoðað vörurnar frá Bee & You hjá okkur Mistur hefurðu líklega tekið eftir litlu dropaflöskunum og spreyjunum. En hvaða efni er þetta eiginlega, hvernig virkar það og hvers vegna er útdráttaraðferðin hjá Bee & You svona einstök?
Kíkjum á vísindin á bak við þessa merkilegu vöru.
(pssst, samt áður en við höldum lengra, þá geturðu smellt á myndir til að skoða nánar hverja vöru fyrir sig)

Hvað er Propolis?

Propolis er seigt efni sem býflugur búa til með því að safna trjákvoðu og plöntusafa og blanda því saman við eigin ensím og bývax. Býflugurnar nota propolis sem eins konar „steypu“ eða sótthreinsandi einangrun til að loka sprungum í búinu, verja það fyrir utanaðkomandi óvinum og halda umhverfinu algjörlega hreinu og lausu við sýkla og bakteríur. Það má segja að propolis sé ónæmiskerfi býflugnabúsins.

Própolis eflir ónæmiskerfið og styður við náttúrulegar varnir líkamans.
Í sínu náttúrulega formi getur mannslíkaminn hins vegar ekki melt propolis eða nýtt næringarefnin úr því. Þess vegna þarf að vinna það á sérstakan hátt – og það er einmitt þar sem Bee & You sker sig úr á heimsvísu.

Verðlaunuð útdráttaraðferð (A.P.E.)

Margir framleiðendur nota ódýrar aðferðir eða sterkt alkóhól til að leysa upp propolis, sem getur eyðilagt viðkvæm virk efni eða skilið eftir sig óæskileg aukaefni.
Bee & You var stofnað af matvælaverkfræðingum sem þróuðu og fengu einkaleyfi á einstakri, vatnsleysanlegri útdráttaraðferð sem kallast Anatolian Propolis Extract (A.P.E.).
  • Þessi tækni tryggir að allt að 3-4 sinnum meira af líffræðilega virkum efnum (andoxunarefnum og fenólsamböndum) varðveitist í lokaafurðinni miðað við hefðbundnar aðferðir.
  • Útkoman er hrein, alkóhólfrí og mjög auðupptekin vara sem mannslíkaminn á auðvelt með að vinna úr.

Hvernig á að nota Propolis og rétt hitastig

Rétt eins og með hráa hunangið skiptir máli hvernig þú neytir propolis til að eyðileggja ekki virku efnin:
  • Hitastig: Gættu þess að setja propolis dropana aldrei í sjóðandi heitan vökva. Hátt hitastig (yfir 40-45°C) getur brotið niður viðkvæmu flavóníðin og andoxunarefnin. Ef þú vilt setja dropana í te eða heitt vatn, leyfðu vökvanum þá fyrst að kólna niður í drykkjarhæft hitastig.

Hvernig og hvað á að velja?

Hjá okkur finnur þú tvær mjög góðar útfærslur af þessari náttúrulegu ofurfæðu:

1. Bee & You Propolis dropar (10% styrkleiki)

Þetta eru hreinir, vatnsleysanlegir dropar sem innihalda 10% hreint Anatolian propolis extrakt. Þar sem þeir eru algjörlega alkóhólfríir og leysast fullkomlega upp í vökva eru þeir afar þægilegir í notkun. Hægt er að setja dropana út í vatnsglas, safa eða beint á tunguna. 10% styrkleiki er fullkominn til að viðhalda almennri vellíðan. 

2. Bee & You Propolis Hálssprey

Hér er propolisinu blandað saman við hrátt hunang og mentól til að búa til einstaklega bragðgott og hentugt hálssprey. Spreyið er hannað til að mýkja og vernda hálskirtla og slímhúð á fljótlegan og þægilegan hátt. Það er tilvalið að eiga þetta í vasanum eða töskunni, sérstaklega yfir kaldari mánuðina og grípa í um leið og þú finnur fyrir ertingu já og þegar mikið álag er á röddinni. 

Propolis fyrir börnin: Hvað þarf að hafa í huga?

Margir foreldrar leita að náttúrulegum vörum fyrir börnin sín en þegar kemur að býflugnaafurðum gilda ákveðnar öryggis- og reglugerðarkröfur sem gott er að þekkja:

  • Aldurstakmörk vegna hunangs: Hálsspreyið inniheldur hrátt hunang. Samkvæmt opinberum heilbrigðisleiðbeiningum má aldrei gefa börnum yngri en 1 árs hunang vegna hættu á ungbarnabotulisma. Hreinu 10% droparnir eru hins vegar alkóhólfríir og hunangslausir, en alltaf skal ráðfæra sig við lækni áður en fæðubótarefni eru gefin mjög ungum börnum.
  • Hvernig á að kynna það? Börn geta verið viðkvæm fyrir nýjum bragðtegundum. Frábær leið til að kynna 10% dropana er að blanda þeim út í smá safa eða hræra þeim út í skeið af hráu hunangi (yfir eins árs). Hálsspreyið er aftur á móti með mildu og sætu bragði sem flest börn taka mjög vel.

Hvað á að taka marga dropa? – Almennar leiðbeiningar fyrir alla fjölskylduna

Til að tryggja sem bestan árangur er tilvalið að fylgja leiðbeiningum um daglega skammta. Reglubundin neysla styður við almenna vellíðan og veitir líkamanum dýrmæt andoxunarefni.

10% Propolis droparnir:

  • Sem fæðubótarefni, neytið 10 dropa tvisvar á dag, helst á milli máltíða. Hægt er að neyta dropanna beint, blanda þeim út í vatnsglas eða út í önnur matvæli eins og hunang, mjólk, jógúrt, hafragraut eða ferskan ávaxtasafa. Hristist vel fyrir notkun. Skammtastærð eru 10 dropar og inniheldur hver flaska um 40 skammta. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Propolis hálsspreyið:

  • Sem fæðubótarefni eða munnsprey. Mælt er með því að spreyja tvisvar í munninn í senn, þrisvar til fórum sinnum yfir daginn eða oftar eftir þörfum. Hristist vel fyrir notkun.

Ábending: Ef barnið þitt eða einhver í fjölskyldunni hefur ofnæmi fyrir býflugnastungum eða öðrum býflugnaafurðum, er alltaf ráðlegt að sýna varkárni, prófa með litlu magni til að fylgjast með viðbrögðum eða ráðfara sig við lækni fyrir notkun. 

Hvað segja ESB reglugerðir um Propolis?

Þegar kemur að markaðssetningu á propolis í Evrópu gilda strangar reglur á vegum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA). Eins og staðan er í dag, eru engar opinberar heilsufullyrðingar (health claims) samþykktar fyrir propolis samkvæmt reglugerð (EC) No 1924/2006.
Þetta þýðir að hvorki framleiðendur né söluaðilar mega fullyrða í markaðsefni að propolis „lækni hálsbólgu“, „virki eins og sýklalyf“ eða „stoppi kvef“. Þess í stað er horft til gæða vörunnar. Bee & You tryggir að farið sé eftir ströngustu hreinleikastöðlum ESB:

  • Fullur rekjanleiki (Hive-to-Table): Hver einasta lota er prófuð fyrir þungamálmum og varnarefnum.
  • Andoxunarinnihald: Í stað lækningaloforða er vísindalega sýnt fram á hátt magn náttúrulegra fenólsambanda og andoxunarefna sem einkenna hreint og ómengað Anatolian propolis.

Í lokin

Hvort sem þú velur 10% dropana til að blanda í morgunsafann eða grípur hálsspreyið fyrir fjölskylduna, þá eru vörurnar frá Bee & You afurð margra ára vísindarannsókna. Með því að velja alkóhólfría vöru með fullum rekjanleika ertu að fá hreinan kraft náttúrunnar eins og býflugurnar hönnuðu hann.
Smelltu hér til að skoða allt frá Bee & You
Til baka í fréttir