Andlitsolía með granateplum og hafþyrni 30 ml.  Amphora Aromatics

Andlitsolía með granateplum og hafþyrni 30 ml. Amphora Aromatics

Venjulegt verð 3.755 kr

Granatepla & hafþyrnisolía sem gefur ljóma.

Þétt og nærandi andlitsolía sem gefur húðinni náttúrulegan ljóma. Dásamleg blanda af olíum úr granateplakjörnum, hafþyrni og hampi.  Þessi öfluga olíublanda getur stuðlað að jafnari húðtón, dregið úr bólgu og komið jafnvægi á húðina. Olían gengur vel inn í húðina og er frábær að nota í andlitsnudd með Gua Sha steini. Hana má bera á húðina áður en farði er notaður eða blanda nokkrum dropum út í andlitsfarðann fyrir aukinn ljóma.

Vegan

100% náttúrulegt.

Notkun:

Berist á hreina húð kvölds og/eða morgna. Má nota eitt sér eða með öðru rakakremi.

Innihald:

Jójóba olía (Simmondsia chinensis)*, Hampfræja olía (Cannabis sativa)*, Granatepla fræolía (Punica granatum)*, Hafþyrnisolía (Hippophae rhamnoides)*, Sólblómaolía (Helianthus annuus), E-vítamín (Tocopherol), *Lífrænt.

Hvað gera innihaldsefnin fyrir þig?

 Jojoba olía: Einn besti eiginleiki Jojoba olíu er hvað hún líkist okkar náttúrulegu húðfitu. Hún gengur vel inn í húðina, nærir og gefur raka og verndar húðina gegn þurrk. Hún er mild og róandi og hentar öllum húðtegundum.
Hampolía: Gefur húðinni góðan raka, kemur jafnvægi á fitustig húðarinnar og dregur úr bólgum. Styrkir varnarlag húðarinnar.
Granatepla fræolía: Rík af A- og C-vítamíni sem styrkir varnarlag húðarinnar ásamt því að stuðla að aukinni kollagen framleiðslu og stinnari húð.
Hafþyrnisolía: Inniheldur 10 sinnum meira af C-vítamín en appelsínur, hátt hlutfall af E-vítamíni, B-vítamín, náttúruleg karótenóið og Omega 3,6,7 og 9. Hafþyrnisolía getur hjálpað við að róa og draga úr bólgum í húð, koma jafnvægi á húðina og gefur henni fallegan ljóma og heilbrigt útlit.
Sólblómaolía: Þessi kaldpressaða olía er rík af E-vítamíni og gefur húðinni raka og ljóma.
E-vítamín: Öflugt andoxunarefni sem er þekkt fyrir nærandi og verndandi eiginleika.

Framleitt og pakkað í Bretlandi í glerflösku með pípettu.


 


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki