Minta 80 gr.  67%. Chocolate and Love, lífrænt
Minta 80 gr.  67%. Chocolate and Love, lífrænt
Minta 80 gr.  67%. Chocolate and Love, lífrænt

Minta 80 gr. 67%. Chocolate and Love, lífrænt

Venjulegt verð 775 kr

67% súkkulaði með mintu

Náttúrulega piparmintuolían gefur ferskt en samt milt bragð og samsetningin af piparmintu, stökkri áferð og dökku súkkulaði gerir það að verkum að súkkulaðið er hreinlega ómótstæðilegt fyrir mintunnendur. Lífrænt dökkt súkkulaði sem fer með bragðlaukana í ævintýralegt ferðalag.

Mintusúkkulaðið hefur hlotið Great taste award og ummæli dómaranna eru eftirfarandi:

,,Piparmintubitarnir voru dásamlega stökkir og mynduðu áhugaverða áferð í mótsögn við stífleika súkkulaðisins. Súkkulaðið var fullkomlega sætt með góðu jafnvægi í sýrustigi. Hlutfall piparmintu á móti súkkulaði var gott og í jafnvægi sem gerir bragðgæði vörunnar góð"

Kakóið í þessu súkkulaðistykki kemur frá Perú og Dóminíska lýðveldinu, sykurreyrinn frá Paraguay og Costa Rica og vanillan frá Madagaskar, allt frá Fairtrade vottuðum fyrirtækjum.

Innihaldsefni, ofnæmi og næringarupplýsingar
Kakómassi*, reyrsykur*, kakósmjör*, piparmintumassi* 10% (reyrsykur*, náttúruleg piparmintuolía*), heill reyrsykur* og vanillustöng*. *Lífrænt vottað.
Kakó, sykur, vanilla: verslað í samræmi við Fairtrade staðla, samtals 99%. Kakó: 67% lágmark (súkkulaði).

Ofnæmi: Getur innihaldið mjólk, heslihnetur, möndlur og jarðhnetur.

Næringarinnihald pr. 100 gr.
Orka 2330kJ (560 kcal)
Fita 38 g
- þar af mettuð fita 23 g
Kolvetni 43 g
- þar af sykur 38 g
Trefjar 9 g
Prótein 7 g
Salt 0 g

Án GMO eins og allar lífrænt vottaðar vörur
Án rotvarnarefna, litarefna og ýruefna eins og soja lesitin

Inniheldur ekki; Soja, glúten eða pálmaolíu
Hentar fyrir vegan, grænmetisætur, þá sem eru með glútenóþol og er vottað Kosher

Verðlaun og viðurkenningar.
Hefur hlotið 1 gullstjörnu í ,,Great taste award“ árin 2013, 2014, 2015, 2020 og 2021

Framleitt í Sviss.

Ytri umbúðir úr FSC vottuðum pappír og innri úr viðarkvoðu, hvort tveggja niðurbrjótanlegt í heimamoltu


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki