{"product_id":"st-clement-s-whipped-body-butter","title":"St.Clement´s whipped body butter","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLeyfðu þér dásamlegan lúxus með þessu létta líkamssmjöri með ilm sem minnir á sumarið.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð St Clement´s líkamssmjörinu verður kroppurinn eins og eftir bestu dekurferð. Í líkamssmjörinu eru aðeins náttúruleg hráefni ásamt ilmkjarnaolíum sem gera húðina yndislega mjúka, slétta og næra hana vel. Líkamssmjörið ýtir undir virkni hinna dásamlegu ilmkjarnaolía sem eru í smjörinu. Léttur ilmur af sítrus með keim af sítrónugrasi og lime og hlýjum tónum af sætri appelsínu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSérfræðingar ENSC blönduðu hér saman lífrænu jómfrúar shea smjöri, kókosolíu, upprunavottaðari vistvænni pálmaolíu og bývaxi til að hjálpa til við að draga úr hrukkum og ójöfnum húðlit en um leið auka þéttleika húðarinnar, mýkt og teygjanleika. Límónu ilmkjarnaolían veitir vörn og gefur andoxunarefni og sæta appelsínan dregur úr bólgu og ertingu í húðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVerndaðu og nærðu líkamann þinn með snert af lúxus og umvefðu þig dásamlegum ilm. Með notkun á St Clement´s þeytta líkamssmjörinu róarðu húðina, mýkir og eykur teygjanleika hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eNáttúruleg litarefni\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁn rotvarnarefna og ilmolía \u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSmýgur hratt inn í húðina\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eMildur ilmur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁbyrg framleiðsla\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e100% náttúrulegt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHandunnið í Skotlandi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEkki prófað á dýrum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEndurnýtanlegar umbúðir\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInnihald og virkni\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓhreinsað lífrænt jómfrúar \u003cstrong\u003eshea smjör\u003c\/strong\u003e vegna þeirra eiginleika að veita húðinni lúxus næringu ásamt raka þar sem það inniheldur mikið magn af náttúrulegum vítamínum og fitusýrum sem eru góðar og endurnærandi fyrir þreytta húð.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eKókosolía\u003c\/strong\u003e síast inn um svitaholurnar og veitir þannig djúpan raka. Laurínsýran sem er í kókosolíunni hefur virka bakteríudrepandi eiginleika sem hjálpa til við að bæta náttúrulegan ljóma húðarinnar.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eUpprunavottuð lífræn pálmaolía\u003c\/strong\u003e fyrir náttúrulega uppsprettu A,C og E vítamína ásamt beta keratin sem er öflugt andoxunarefni og drepur sindurefni sem leitt geta til ótímabærrar öldrunar með því að eyðileggja húðfrumur.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eBývax\u003c\/strong\u003e til verndar ysta lagi húðarinnar sem verndar okkur fyrir skaðlegum umhverfisáhrifum. Það dregur einnig úr þurrki með því að halda rakanum í húðinni.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eIlmkjarnaolía úr sætum appelsínum\u003c\/strong\u003e hefur þá eiginleika að vera bólgueyðandi og sótthreinsandi.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eIlmkjarnaolía úr lime\u003c\/strong\u003e inniheldur mikið magn af limonene, náttúrulegu andoxunarefni sem m.a. hjálpar til við að fjarlægja sindurefni úr húðfrumum og dregur þannig úr öldrunarmerkjum eins og sólblettum, fínum línum og hrukkum, Hjálpar jafnframt til við að styrkja húðina. \u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eSítrónugras ilmkjarnaolía \u003c\/strong\u003egetur hjálpað til við að styrkja húðina, draga úr ertingu og inniheldur náttúruleg andoxunarefni sem veita vörn\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eInnihald ilmkjarnaolía:\u003cbr\u003e* Limonene, Linalool, Citral\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eInnihald: 100 ml\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eEftir góða dekurstund í baði, gefðu þér smástund til viðbótar til að bera á þig mjúkt og kremkennt St. Clement´s líkamssmjörið. Berðu smjörið mjúklega á þig og byrjaðu á þeim stöðum sem þarfnast mestrar athygli. Berðu svo á restina af kroppnum með mjúkum strokum.\u003c\/p\u003e","brand":"ENSC","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51943788183863,"sku":"ENSC-2007","price":3175.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/2217\/2589\/files\/910st_7.png?v=1775909109","url":"https:\/\/mistur.is\/products\/st-clement-s-whipped-body-butter","provider":"Mistur","version":"1.0","type":"link"}